TALNAEFNI UMHVERFI 29. JÚNÍ 2026

Árið 2024 námu tekjur af umhverfis- og auðlindatengdum sköttum um 78,9 milljörðum króna, sem er 4% aukning frá árinu 2023. Til samanburðar jukust tekjurnar um 10% milli 2022-2023 og 23% milli 2021-2022. Frá árinu 2014 hafa heimilin greitt á bilinu 47-55% af þessum sköttum.

Orkuskattar voru 33% af umhverfis- og auðlindatengdum sköttum árið 2024. Að jafnaði hefur hlutfall þeirra verið á bilinu 40-50%. Til orkuskatta teljast meðal annars vörugjöld á olíuvörur og skattar á afhendingu raforku. Flutningsskattar voru 32% af umhverfis- og auðlindatengdum sköttum árið 2024 en hafa að jafnaði verið 20-30% af tekjum af þessum sköttum.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.