Árið 2024 var losun gróðurhúsalofttegunda frá hagkerfi Íslands 6.811 kílótonn af CO₂. Þessi losun er 3,7% minni en árið 2023 en losun frá hagkerfinu jókst verulega eftir kórónuveirufaraldurinn.
Losun frá hagkerfi Íslands kemur að mestu frá flutningastarfsemi (33,2%), framleiðslugreinum (29,6%) og landbúnaði og sjávarútvegi (19,2%). Losun frá heimilum var 7,8% af heildarlosun hagkerfisins.
Losun vegna aksturs var 823 kílótonn af CO₂ árið 2024, sem jafngildir 12,1% af heildarlosun hagkerfisins. Akstur heimilisbíla, sem er jafnframt helsti uppruni losunar heimila, nam 519 kílótonnum og var 63,1% af heildarlosun vegasamgangna.