FRÉTT ÞJÓÐHAGSSPÁ 27. MAÍ 2016

Landsframleiðslan eykst um 4,3% árið 2016, 3,5% árið 2017 vegna einkaneyslu og fjárfestingar.

Hagstofa Íslands hefur í dag gefið út þjóðhagsspá að sumri í ritröð sinni, Hagtíðindum. Spáin nær til áranna 2016 til 2021.

Gert er ráð fyrir að hagvöxtur verði 4,3% árið 2016, 3,5% árið 2017 og nærri 3% árlega árin 2018 - 2021. Innlend eftirspurn, fyrst og fremst einkaneysla og fjárfesting eru að baki hagvextinum fyrstu árin en árið 2016 er spáð 6,6% aukningu þjóðarútgjalda.

Einkaneysla er talin aukast um 6% árið 2016, 4,8% 2017, 3,6% árið 2018 og nærri 3% á ári eftir það.  Fjárfesting eykst um 16% árið 2016 og 6,4% árið 2017 en þá verður m.a. stóriðjufjárfesting í hámarki.  Samneysla eykst hægt í samræmi við áframhaldandi aðhald í opinberum útgjöldum.

Afgangur verður af utanríkisviðskiptum allan spátímann, lítið eitt minnkandi í fyrstu þegar mestur kraftur er í einkaneyslu og fjárfestingu, en stöðugur eftir það.

Verðbólga hefur verið lítil síðustu ár, en búist er við að hún aukist seinni hluta ársins 2016 og að hún haldist nokkuð yfir verðbólgumarkmiði þar til líður á spátímann.

Laun og kaupmáttur þeirra hafa hækkað mikið að undanförnu. Nokkur spenna er á vinnumarkaði en atvinna og eftirspurn eftir vinnuafli hafa aukist mjög.   Megnið af launabreytingum út árið 2018 eru nú bundnar  af kjarasamningum.

Hagstofan gaf síðast út þjóðhagsspá 29. febrúar síðastliðinn og er næsta útgáfa ráðgerð í nóvember 2016.

Þjóðhagsspá að sumri 2016 – Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1073 , netfang Marino.Melsted@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.