FRÉTT ÞJÓÐHAGSREIKNINGAR 29. MAÍ 2026

Samkvæmt fyrsta mati er áætlað að verg landsframleiðsla hafi aukist um 2,7% að raunvirði á fyrsta ársfjórðungi 2026 miðað við sama tímabil fyrra árs. Framlag utanríkisviðskipta vegur þyngst í vextinum en afgangur á vöru- og þjónustuviðskiptum veldur því að framlag utanríkisviðskipta til hagvaxtar er jákvætt um 5,3% á fyrsta ársfjórðungi samanborið við fyrra ár.

Samdráttur í þjóðarútgjöldum vegur á móti aukningu í utanríkisviðskiptum. Á fyrsta ársfjórðungi er metið að fjármunamyndun í hagkerfinu hafi dregist saman um 12% samanborið við sama fjórðung fyrra árs. Á móti kemur er talið að einkaneysla hafi aukist að raunvirði um 2,2% og samneysla um 0,8%. Að teknu tilliti til birgðabreytinga er áætlað að þjóðarútgjöld á fyrsta ársfjórðungi hafi dregist saman um 0,9% að raunvirði miðað við sama tímabil fyrra árs.

Leiðrétt fyrir árstíðabundnum sveiflum er áætlað að landsframleiðsla hafi aukist um 3,7% að raunvirði samanborið við fjórða ársfjórðung 2025.

Einkaneysla jókst um 2,2%
Einkaneysla á fyrsta ársfjórðungi er talin hafa aukist um 2,2% að raunvirði miðað við sama tímabil fyrra árs. Innlend neysla hjaðnar almennt, vægari vöxtur var í kaupum heimilanna á þjónustutengdum neysluvörum en síðustu misseri. Aukning var þó í kaupum heimilanna á bifreiðum á ársfjórðungnum. Einnig var vöxtur í einkaneyslu vegna útgjalda Íslendinga á ferðalögum erlendis ásamt vægum vexti í húsnæðislið.

Samneysla jókst um 0,8% á fyrsta ársfjórðungi
Samneysla hins opinbera er talin hafa aukist um 0,8% að raunvirði á fyrsta ársfjórðungi miðað við sama tímabil fyrra árs. Bráðabirgðatölur benda til þess að samneyslan hafi aukist um 8,3% að nafnvirði frá fyrra ári en á sama tíma er áætlað að verðbreyting hafi verið um 7,4% sem veldur 0,8% magnbreytingu. Nánar verður fjallað um fjármál hins opinbera í útgáfu þann 11. júní næstkomandi.

Samdráttur í fjármunamyndun um 12%
Fjármunamyndun er talin hafa dregist saman um 12% að raunvirði á fyrsta ársfjórðungi 2026 samanborið við sama ársfjórðung fyrra árs. Þar af er talið að fjármunamyndun atvinnuveganna hafi dregist saman um 12% að raunvirði, fjármunamyndun hins opinbera um 18.5% og fjármunamyndun íbúðarhúsnæðis um 8.3%. Áfram er umtalsverð fjárfesting í gagnaverum, en minnkar þó miðað við sama ársfjórðung síðasta árs.

Afgangur á utanríkisviðskiptum
Áætlað er að vöru- og þjónustuviðskipti við útlönd hafi verið jákvæð um 5,9 milljarða króna á fyrsta ársfjórðungi sem er töluverður viðsnúningur miðað við sama ársfjórðung síðasta árs þegar halli var á vöru- og þjónustuviðskiptum upp á 66,5 milljarða króna. Viðsnúning á vöru- og þjónustuviðskiptum við útlönd má nær alfarið rekja til umsvifa fyrirtækja tengd starfsemi gagnavera hérlendis en mikill samdráttur var í innflutningi á búnaði fyrir gagnaver ásamt því að tekjur af útfluttri þjónustu jukust um 66%. Afgangur á utanríkisviðskiptum veldur því að framlag utanríkisviðskipta til hagvaxtar er jákvætt um 5,3% að mestu tilkomið vegna samdráttar í vöru innflutningi.

Birgðabreytingar jukust um 14 milljarða
Heildarverðmæti birgða jókst um 14,2 milljarða króna á fyrsta ársfjórðungi 2026 miðað við síðasta ársfjórðung. Mest vægi hafði jákvæð breyting í sjávarútvegi, sem nam 11,5 milljörðum króna sem má að miklu leyti rekja til aukinnar veiði á loðnu. Olíubirgðir jukust um 822 milljónir króna, en birgðir í áli, álafurðum og kísilmálmi jukust um 1,9 milljarða króna. Framlag birgðabreytinga til hagvaxtar á fyrsta ársfjórðungi 2026 var 1,1%.

Árstíðaleiðrétt landsframleiðsla jókst um 3,7%
Árstíðaleiðrétt landsframleiðsla jókst að raunvirði um 3,7% á fyrsta ársfjórðungi 2026 miðað við fjórða ársfjórðung 2025. Aftur á móti standa þjóðarútgjöld í stað, einkaneysla gefur eftir og lækkar um 0,5% á árstíðaleiðréttum mælikvarða, samneysla eykst um 0,2% og fjármunamyndun lækkar um 0,5%. Vöxturinn í árstíðarleiðréttri landsframleiðslu skýrist því að mestu af hagstæðari utanríkisviðskiptum, árstíðaleiðréttur útflutningur jókst um 5,1% en samdráttur var í innflutningur um 4,2%.

Uppfært framleiðsluuppgjör
Samhliða þessari útgáfu hafa undirverðvísitölur í framleiðsluuppgjöri fyrir staðvirðingu í matvælaframleiðslu C10-12 verið uppfærðar til hins betra. Þetta hefur einnig áhrif á aðrar atvinnugreinar á föstu verðlagi þar sem ráðstöfunaruppgjör er meginaðferðin. Tafla THJ08421: Framleiðsluþættir á föstu verðlagi eftir atvinnugreinum hefur verið uppfærð með þessum breytingum.

Vinnumagn eykst um 0,2% á milli ára
Áætlað er að heildarfjöldi unninna stunda hafi aukist um 0,2% á fyrsta ársfjórðungi 2026 samanborið við fyrsta ársfjórðung 2025. Á sama tíma stóð fjöldi starfandi í stað.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.