Ráðstöfunartekjur heimilanna jukust um 6,8% árið 2025 samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum borið saman við fyrra ár. Ráðstöfunartekjur á mann námu rúmlega 6,4 milljónum króna á árinu 2025 og jukust um 5,4% frá fyrra ári. Að teknu tilliti til verðlagsþróunar er áætlað að kaupmáttur ráðstöfunartekna heimila á mann hafi aukist um 1,2% á árinu en vísitala neysluverðs hækkaði um 4,1% á sama tímabili.
Aukning í launatekjum heimilanna
Heildartekjur heimilanna jukust árið 2025 um 7,3% frá fyrra ári. Sá liður sem þyngst vegur í hækkun á heildartekjum heimilanna eru launatekjur sem áætlað er að hafi aukist um rúma 170 milljarða frá fyrra ári eða sem nemur 7%. Á sama tímabili jukust skattar á laun um tæpa 65 milljarða eða um 9,4%.
Áætlað er að vaxtagjöld heimila hafi aukist um 3,4% á árinu 2025 borið saman við fyrra ár. Á sama tímabili jukust eignatekjur heimila um 3,1%.
Lífeyristekjur og félagslegar tilfærslur jukust um 9,8% á milli ára
Áætlað er að lífeyristekjur og félagslegar tilfærslur til heimilanna hafi aukist um rúma 62 milljarða króna frá fyrra ári sem nemur um 9,8% aukningu á milli ára. Lífeyristekjur og félagslegar tilfærslur námu 15,4% af heildartekjum heimilanna árið 2025.
Tryggingagjöld atvinnurekenda og launafólks heimilisgeirans jukust um 4,5% á árinu 2025.
Ráðstöfunartekjur heimilanna jukust um 5,8% á fjórða ársfjórðungi 2025 samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum borið saman við sama tímabil fyrra árs. Ráðstöfunartekjur á mann námu rúmlega 1,6 milljónum króna á ársfjórðungnum og jukust um 4,4% frá sama tímabili í fyrra. Að teknu tilliti til verðlagsþróunar jókst kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann um 0,2% á tímabilinu en vísitala neysluverðs hækkaði um 4,2% á sama tímabili.
Heildartekjur heimilanna jukust um 6,8% á fjórða ársfjórðungi 2025 samanborið við sama ársfjórðung fyrra árs en þar af jukust launatekjur um 5,9% og eignatekjur um 3%. Heildargjöld heimilanna jukust um 8,3% á fjórða ársfjórðungi 2025 samanborið við sama ársfjórðung í fyrra.
Lífeyristekjur og félagslegar tilfærslur jukust um 13,2% á fjórða ársfjórðungi 2025 borið saman við sama ársfjórðung 2024 og námu 15,4% af heildartekjum heimilanna á ársfjórðungnum. Tryggingagjöld atvinnurekenda og launafólks heimilisgeirans jukust um 2,1% á ársfjórðungnum samanborið við sama ársfjórðung fyrra árs.
Ofangreindar niðurstöður eru skilgreindar sem bráðabirgðaniðurstöður og byggja þær á bestu tiltæku gögnum en Hagstofan mun birta endurskoðaðar niðurstöður þegar fyrir liggja endanlegri upplýsingar, meðal annars úr skattframtölum fyrirtækja og einstaklinga.