Ráðstöfunartekjur heimilanna jukust um 10,3% árið 2024 borið saman við fyrra ár samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum. Ráðstöfunartekjur á mann námu rúmlega 6,1 milljón króna á árinu og jukust um 8,3% frá fyrra ári. Að teknu tilliti til verðlagsþróunar jókst kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann um 2,3% á árinu en vísitala neysluverðs hækkaði um 5,9%.
Lagt er upp með að endanlegar tölur fyrir árið 2024 verða birtar í mars árið 2026 en þá munu liggja fyrir ítarlegri gögn um rekstur fyrirtækja.
Heildartekjur heimilanna jukust um 9,5% árið 2024 samanborið við fyrra ár en þar af jukust launatekjur um 7,4% og eignatekjur um 18,9%. Lífeyristekjur og félagslegar tilfærslur jukust um 11,8% sem má að mestu rekja til 12,4% hækkunar lífeyristekna frá fyrra ári en tekjutilfærslur frá almannatryggingum jukust einnig um 7,4%.
Gjöld heimilanna jukust um 8,6% á árinu 2024 samanborið við fyrra ár en þar af jukust skattar á laun um 6,7% og vaxtagjöld um 17%.
Samkvæmt nýju bráðabirgðamati 2025 jókst kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann um 1,5% á fyrsta ársfjórðungi 2025 og um 1,1% á öðrum ársfjórðungi.
Ráðstöfunartekjur heimilanna jukust um 6,5% á öðrum ársfjórðungi 2025 samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum borið saman við sama tímabil fyrra árs. Ráðstöfunartekjur á mann námu rúmlega 1,6 milljónum króna á ársfjórðungnum og jukust um 5,2% frá sama tímabili í fyrra. Að teknu tilliti til verðlagsþróunar jókst kaupmáttur á mann um 1,1% á tímabilinu en vísitala neysluverðs hækkaði um 4,1% á sama tímabili.
Heildartekjur heimilanna jukust um 7,4% á öðrum ársfjórðungi 2025. Sá liður sem vegur hvað þyngst í aukningu heildartekna er launatekjur en þær jukust um 7,5% frá sama ársfjórðungi á síðasta ári.
Lífeyristekjur og félagslegar tilfærslur jukust um 9,5% á öðrum ársfjórðungi 2025 samanborið við sama tímabil fyrra árs og námu 15,3% af heildartekjum heimilanna á ársfjórðungnum.
Gjöld heimilanna jukust um 8,4% á öðrum ársfjórðungi en þar af jukust skattar á laun um 8,7% og vaxtagjöld um 3%. Þá jukust tryggingagjöld atvinnurekenda og launafólks heimilageirans um 5,9% samanborið við sama tímabil fyrra árs.