FRÉTT ÞJÓÐHAGSREIKNINGAR 19. SEPTEMBER 2014

Landsframleiðslan á fyrstu sex mánuðum ársins 2014 jókst um 0,6% að raungildi borið saman við fyrstu sex mánuði ársins 2013. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld, sem eru samtala neyslu og fjárfestingar, um 2,8%. Einkaneysla jókst um 4%, samneysla um 1,1% og fjárfesting um 7,8%. Útflutningur jókst um 3,7% og innflutningur nokkru meira, eða um 9%.


Landsframleiðslan á 2. ársfjórðungi 2014, án árstíðaleiðréttingar, jókst um 2,4% frá sama ársfjórðungi fyrra árs en árstíðaleiðrétt landsframleiðsla dróst saman um 1,2% frá 1. ársfjórðungi 2014.

Landsframleiðslan á 2. ársfjórðungi 2014 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.