FRÉTT ÞJÓÐHAGSREIKNINGAR 13. SEPTEMBER 2005

Út er komið hefti Hagtíðinda í efnisflokknum Þjóðhagsreikningar  þar sem birtar eru bráðabirgðatölur Hagstofunnar um landsframleiðslu fyrir allt árið 2004. Þar kemur meðal annars fram að landsframleiðslan á árinu 2004 varð 885 milljarðar og óx að raungildi um 6,2% frá fyrra ári. Þessi vöxtur kemur í kjölfar 3,6% vaxtar á árinu 2003. Vegna nokkru lakari viðskiptakjara og aukinna vaxta- og arðgreiðslna til útlanda uxu þjóðartekjur nokkru minna eða um 4,9%.

Vöxturinn einkenndist af miklum vexti einkaneyslu sem óx um 6,9% og fjárfestingar sem óx um 21,0%. Þjóðarútgjöldin uxu því talsvert umfram landsframleiðsluna eða um 8,4% og leiddi það til verulegs halla á vöru- og þjónustuviðskiptum við útlönd.

Samhliða þessum bráðabirgðatölurm hefur Hagstofan endurskoðað fyrri tímaraðir allt aftur til ársins 1990 vegna breytinga á aðferðum sem beitt er. 
 
Landsframleiðsla 2004 - bráðabirgðatölur - útgáfur  

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.