FRÉTT ÞJÓÐHAGSREIKNINGAR 10. MARS 2016

Landsframleiðslan á 4. ársfjórðungi 2015 jókst um 3,2% að raungildi borið saman við 4. ársfjórðung 2014. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld, sem eru samtala neyslu og fjárfestingar, um 7,5%. Einkaneysla jókst um 6,1%, samneysla um 1,1% og fjárfesting um 31,2%. Útflutningur jókst um 10,6% á sama tíma og innflutningur nokkru meira, eða um 20,3%.

Árstíðaleiðrétt landsframleiðsla dróst saman um 1,1% milli 3. og 4. ársfjórðungs 2015. Þar af jókst einkaneysla um 1,8%, samneysla um 0,5%, fjárfesting um 5,2% og innflutningur um 8,3%.

Landsframleiðslan á 4. ársfjórðungi 2015 - Hagtíðindi

Talnaefni (sjá Landsframleiðsla eftir ársfjórðungum 1997-2015)

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang thjodhagsreikningar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.