FRÉTT ÞJÓÐHAGSREIKNINGAR 08. DESEMBER 2017

Landsframleiðslan á 3. ársfjórðungi 2017 jókst að raungildi um 3,1% frá sama ársfjórðungi fyrra árs. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld, sem eru sam­tala neyslu og fjárfestingar, um 10,7%. Einka­neysla jókst um 6,7%, sam­neysla um 2,9% og fjár­festing um 19,4%.  Út­flutningur dróst saman um 0,1% á sama tíma og inn­flutningur jókst um 11,6%. Helstu drifkraftar hagvaxtar er fjármunamyndun og einkaneysla.

Árstíðaleiðrétt lands­fram­leiðsla jókst að raungildi um 2,2% frá 2. ársfjórðungi 2017.

Á fyrstu níu mánuðum ársins 2017 jókst landsframleiðslan um 4,3% að raungildi borið saman við fyrstu níu mánuði ársins 2016. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld, sem eru samtala neyslu og fjárfestingar, um 7,4%. Einka­neysla jókst um 7,7%, samneysla um 2,7% og fjár­festing um 11,8%. Út­flutningur jókst um 3,9% og inn­flutningur nokkru meira, eða um 10,7%.

Landsframleiðslan á 3. ársfjórðungi 2017 — Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang thjodhagsreikningar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.