FRÉTT ÞJÓÐHAGSREIKNINGAR 07. DESEMBER 2016

Landsframleiðslan á 3. ársfjórðungi 2016 jókst að raungildi um 10,2% frá sama ársfjórðungi fyrra árs en það er mesta aukning sem mælst hefur frá því á 4. ársfjórðungi 2007. Magnaukning landsframleiðslunnar nú skýrist að verulegu leyti af framlagi utanríkisviðskipta en útflutningur jókst að raungildi um 16,4% samanborið við sama tímabil árið 2015. Árstíðaleiðrétt landsframleiðsla jókst að raungildi um 4,7% frá 2. ársfjórðungi 2016.

Á fyrstu níu mánuðum ársins 2016 jókst landsframleiðslan um 6,2% að raungildi borið saman við fyrstu níu mánuði ársins 2015. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld, sem eru samtala neyslu og fjárfestingar, um 9,3%. Einkaneysla jókst um 6,7%, samneysla um 1,1% og fjárfesting um 27,4%. Útflutningur jókst um 10,0% og innflutningur nokkru meira, eða um 16,6%.

Landsframleiðslan á 3. ársfjórðungi 2016 - Hagtíðindi

Talnaefni (sjá Landsframleiðsla eftir ársfjórðungum 1997-2016)

 

 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang thjodhagsreikningar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.