Út eru komin Hagtíðindi í efnisflokknum þjóðhagsreikningar um landsframleiðslu á 3. ársfjórðungi 2008. Landsframleiðsla er talin hafa dregist saman um 0,8% að raungildi á 3. fjórðungi þessa árs frá sama tíma árið áður. Þjóðarútgjöld drógust saman um 9,7% og innflutningur um tæplega 10% en útflutningur óx um tæplega 18%. Árstíðaleiðrétt landsframleiðsla dróst saman um 3,4% á 3. ársfjórðungi þessa árs frá fyrri ársfjórðungi sama árs en óx um 4,7% á 2. ársfjórðungi.
Landsframleiðslan á 3. ársfjórðungi 2008 - Hagtíðindi
Talnaefni (sjá Landsframleiðsla eftir ársfjórðungum 1997-2008)