Út eru komin Hagtíðindi í efnisflokknum þjóðhagsreikningar um landsframleiðslu á 3. ársfjórðungi 2007. Landsframleiðsla er talin hafa vaxið um 4,3% að raungildi á 3. fjórðungi þessa árs frá sama tíma árið áður. Á tímabilinu jukust þjóðarútgjöld um rúmlega 2%, útflutningur jókst um rúmlega 7% og innflutningur um 2%. Árstíðaleiðrétt landsframleiðsla óx um 1,0% frá 2. fjórðungi til 3. fjórðungs í ár.
Landsframleiðslan á 3. ársfjórðungi 2007 - Hagtíðindi
Talnaefni (sjá Landsframleiðsla eftir ársfjórðungum 1997-2007)