FRÉTT ÞJÓÐHAGSREIKNINGAR 08. SEPTEMBER 2017

Landsframleiðslan á 2. ársfjórðungi 2017 jókst að raungildi um 3,4% frá sama ársfjórðungi fyrra árs. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld, sem eru sam­tala neyslu og fjárfestingar, um 6,7%. Einka­neysla jókst um 9,5%, sam­neysla um 2,8% og fjár­festing um 5,8%.  Út­flutningur jókst um 8,0% á sama tíma og inn­flutningur jókst um 16,2%. Helstu drifkraftar hagvaxtar er einkaneysla ásamt fjármunamyndun og samneyslu. Árstíðaleiðrétt lands­fram­leiðsla dróst saman að raungildi um 1,1% frá 1. ársfjórðungi 2017.

Landsframleiðslan á fyrstu sex mánuðum ársins 2017 jókst um 4,3% að raungildi borið saman við fyrstu sex mánuði ársins 2016. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld um 5,2%. Einka­neysla jókst um 8,3%, samneysla um 2,2% og fjár­festing um 5,2%. Út­flutningur jókst um 5,2% og inn­flutningur um 10%.


Landsframleiðslan á 2. ársfjórðungi 2017 - Hagtíðindi

Talnaefni (sjá Landsframleiðsla eftir ársfjórðungum 1997-2017)

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang thjodhagsreikningar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.