FRÉTT ÞJÓÐHAGSREIKNINGAR 11. SEPTEMBER 2015

Landsframleiðslan á fyrstu sex mánuðum ársins 2015 jókst um 5,2% að raungildi borið saman við fyrstu sex mánuði ársins 2014. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld, sem eru samtala neyslu og fjárfestingar, um 7,3%. Einkaneysla jókst um 4,4%, samneysla um 1,0% og fjárfesting um 21,2%. Útflutningur jókst um 9% og innflutningur nokkru meira, eða um 13,6%.

Landsframleiðslan á 2. ársfjórðungi 2015, án árstíðaleiðréttingar, jókst um 5,6% frá sama ársfjórðungi fyrra árs en árstíðaleiðrétt landsframleiðsla jókst um 3,3% frá 1. ársfjórðungi 2015.

Landsframleiðslan á 2. ársfjórðungi 2015 - Hagtíðindi

Talnaefni (sjá Landsframleiðsla eftir ársfjórðungum 1997-2015)

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang thjodhagsreikningar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.