FRÉTT ÞJÓÐHAGSREIKNINGAR 08. SEPTEMBER 2011

Landsframleiðsla fyrstu sex mánuði ársins 2011 jókst um 2,5% að raungildi samanborið við fyrstu sex mánuði ársins 2010.

Landsframleiðsla dróst saman um 2,8% að raungildi milli 1. ársfjórðungs 2011 og 2. ársfjórðungs 2011. Á sama tíma drógust þjóðarútgjöld saman um 3,9%. Einkaneysla jókst um 1,8%, samneysla um 0,4% og fjárfesting um 7,7%. Útflutningur jókst um 1,4% en innflutningur var óbreyttur. Þessar tölur eru árstíðaleiðréttar og miðast við vöxt milli ársfjórðunga, ekki ára.

Landsframleiðslan á 2. ársfjórðungi - Hagtíðindi

Talnaefni (sjá Landsframleiðsla eftir ársfjórðungum 1997-2011)

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.