FRÉTT ÞJÓÐHAGSREIKNINGAR 15. SEPTEMBER 2006

Út eru komin Hagtíðindi í efnisflokknum þjóðhagsreikningar um landsframleiðslu á 2. ársfjórðungi 2006.  Landsframleiðsla er talin hafa vaxið um 2¾% að raungildi á 2. fjórðungi þessa árs frá sama tíma árið áður. Þjóðarútgjöld jukust hins vegar talsvert meira, eða um 7% og leiddi það til áframhaldandi halla í viðskiptum við útlönd.  Árstíðaleiðrétt landsframleiðsla sýnir 2½% vöxt fyrir sama tímabil en 2% vöxt frá næstliðnum ársfjórðungi.

Landsframleiðslan á 2. ársfjórðungi 2006 - Hagtíðindi

Talnaefni (sjá Landsframleiðsla eftir ársfjórðungum 1997-2006)

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.