FRÉTT ÞJÓÐHAGSREIKNINGAR 07. JÚNÍ 2016

Landsframleiðslan á fyrsta ársfjórðungi 2016 jókst um 4,2% að raungildi borið saman við 1. ársfjórðung 2015. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld, sem eru samtala neyslu og fjárfestingar, um 8,3%. Einkaneysla jókst um 7,1%, samneysla um 0,1% og fjárfesting um 24,5%. Útflutningur jókst um 6,4% en innflutningur töluvert meira, eða um 15,2%.

Árstíðaleiðrétt landsframleiðsla dróst saman um 0,5% milli 4. ársfjórðungs 2015 og 1. ársfjórðungs 2016. Þar af jókst einkaneysla um 1,8%, fjárfesting um 4,4% á meðan samneysla dróst saman um 0,1%. Innflutningur jókst um 5,5% en útflutningur dróst saman um 0,5%.

Landsframleiðslan á 1. ársfjórðungi 2016 - Hagtíðindi

Talnaefni (sjá Landsframleiðsla eftir ársfjórðungum 1997-2016)

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang thjodhagsreikningar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.