FRÉTT ÞJÓÐHAGSREIKNINGAR 09. JÚNÍ 2015

Landsframleiðslan á fyrsta ársfjórðungi 2015 jókst um 2,9% borið saman við 1. ársfjórðung 2014. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld, sem eru samtala neyslu og fjárfestingar, um 9,9%. Einkaneysla jókst um 3,9%, samneysla um 1,5% og fjárfesting um 23,5%. Útflutningur jókst um 2,7% en innflutningur töluvert  meira, eða um 17,4%.

Árstíðaleiðrétt landsframleiðsla dróst saman um 1,5% milli 4. ársfjórðungs 2014 og 1. ársfjórðungs 2015. Þar af jókst einkaneysla um 0,8%, samneysla um 0,3% og fjárfesting um 16,1%. Innflutningur jókst um 12,8% á meðan útflutningur jókst um 2,4%.

Landsframleiðslan á 1. ársfjórðungi 2015 - Hagtíðindi

Talnaefni (sjá Landsframleiðsla eftir ársfjórðungum 1997-2015)

 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.