FRÉTT ÞJÓÐHAGSREIKNINGAR 08. JÚNÍ 2011

Landsframleiðsla jókst um 2,0% að raungildi milli 4. ársfjórðungs 2010 og 1. ársfjórðungs 2011. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld um 5,1%, sem skýrist að mestu af mikilli aukningu birgða. Einkaneyslan dróst saman um 1,6% og fjárfestingin um 6,8%. Samneysla jókst hins vegar um 0,1%. Útflutningur dróst saman um 8,2% og innflutningur um 4,1% á sama tímabili. Þessar tölur eru árstíðaleiðréttar og miðast við vöxt milli ársfjórðunga, ekki ára.


Landsframleiðslan á 1. ársfjórðungi 2011 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.