FRÉTT ÞJÓÐHAGSREIKNINGAR 08. JÚNÍ 2009

Út eru komin Hagtíðindi í efnisflokknum þjóðhagsreikningar um landsframleiðslu á 1. ársfjórðungi 2009. Landsframleiðsla er talin hafa dregist saman um 3,6% að raungildi frá 4. ársfjórðungi 2008 til 1. ársfjórðungs 2009. Á sama tíma drógust þjóðarútgjöld saman um 3,3% þar sem einkaneysla jókst um 1,7%, fjárfesting dróst saman um 31,3% og samneyslan um 2,2% frá 4. ársfjórðungi 2008 til 1. ársfjórðungs 2009. Þá er talið að útflutningur hafi dregist saman um 1,9% en innflutningur aukist um 7,8%. Þessar tölur eru árstíðaleiðréttar og miðast við vöxtinn milli samliggjandi ársfjórðunga, ekki ára.


Landsframleiðslan á 1. ársfjórðungi 2009 - Hagtíðindi

Talnaefni (sjá Landsframleiðsla eftir ársfjórðungum 1997-2009)

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.