FRÉTT ÞJÓÐHAGSREIKNINGAR 13. JÚNÍ 2007

Út eru komin Hagtíðindi í efnisflokknum þjóðhagsreikningar um landsframleiðslu á 1. ársfjórðungi 2007. Landsframleiðsla er áætluð sem næst óbreytt að raungildi á 1. fjórðungi þessa árs frá sama tíma árið áður. Þjóðarútgjöld drógust saman um tæp 10% en útflutningur óx um 17% og innflutningur dróst saman um 12%. Árstíðaleiðrétt landsframleiðsla dróst saman um 0,9% á milli 1. fjórðungs ársins 2007 og 4. ársfjórðungs árið 2006 en hélst nánast óbreytt frá sama tímabili árið áður.

Landsframleiðslan á 1. ársfjórðungi 2007 - útgáfa

Talnaefni

 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.