FRÉTT ÞJÓÐHAGSREIKNINGAR 10. MARS 2016

Landsframleiðsla jókst að raungildi um 4,0% á árinu 2015 og er nú 5,0% meiri en hún var árið 2008. Neysla og fjárfesting drógu hagvöxtinn áfram en þjóðarútgjöld jukust um 6,3%.

Einkaneysla jókst um 4,8%, samneysla um 1,1% og fjárfesting jókst um 18,6%. Útflutningur jókst um 8,2% á sama tíma og innflutningur jókst um 13,5% og dró utanríkisverslun úr hagvexti þrátt fyrir 155 milljarða króna afgang af vöru- og þjónustuviðskiptum á liðnu ári.

Fjárfesting jókst um 18,6% á síðasta ári, sem er enn meiri vöxtur en árið 2014 þegar aukningin nam 16,0%. Mikil aukning var í fjárfestingu atvinnuveganna, eða 29,5% en íbúðafjárfestingin dróst saman um 3,1% og fjárfesting hins opinbera um 1,1%.

Halli á launa- og fjáreignatekjum frá útlöndum minnkaði um 14 milljarða króna árið 2015, samkvæmt bráðabirgðatölum Seðlabanka. Það ásamt 155,1 milljarðs afgangi af vöru- og þjónustuviðskiptum leiddi til jákvæðs viðskiptajafnaðar sem nam tæpum 135 milljörðum króna án rekstrarframlaga, eða 6,1% af landsframleiðslu ársins. Til samanburðar var viðskiptajöfnuður jákvæður um tæpa 90 milljarða árið 2014.

Viðskiptakjaraáhrif, sem hlutfall af landsframleiðslu fyrra árs, voru jákvæð um 3,9% á árinu 2015. Það ásamt jákvæðum viðskiptajöfnuði varð til þess að þjóðartekjur jukust meira en nam vexti landsframleiðslu eða um 8,7% samanborið við 3,4% aukningu árið áður.


Landsframleiðslan 2015 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang thjodhagsreikningar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.