FRÉTT ÞJÓÐHAGSREIKNINGAR 04. SEPTEMBER 2009
Út er komið hefti Hagtíðinda í efnisflokknum Þjóðhagsreikningar, þar sem birtar eru endurskoðaðar tölur Hagstofunnar um landsframleiðslu fyrir allt árið 2008. Fram kemur meðal annars að landsframleiðslan á árinu 2008 varð 1.476  milljarðar króna og jókst að raungildi um 1,3% frá fyrra ári. Þessi vöxtur kemur í kjölfar 5,6% vaxtar á árinu 2007.

Vöxt landsframleiðslunnar á liðnu ári má öðru fremur rekja til útflutnings, sem jókst um 7% og skýrist sú aukning að stórum hluta af mikilli aukningu á útflutningi afurða stóriðju. Á sama tíma dróst innflutningur saman um 18%. Þjóðarútgjöld drógust saman um 8,6%

Landsframleiðslan 2008 - endurskoðun  - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.