FRÉTT ÞJÓÐHAGSREIKNINGAR 14. MARS 2005

Út er komið hefti í efnisflokknum Þjóðhagsreikningar  þar sem birtar eru fyrstu tölur Hagstofunnar um landsframleiðslu fyrir allt árið 2004. Þar kemur meðal annars fram að landsframleiðslan á árinu 2004 varð 859 milljarðar og óx að raungildi um 5,2% frá fyrra ári. Þessi vöxtur kemur í kjölfar 4,2% vaxtar á árinu 2003. Vegna nokkru lakari viðskiptakjara og aukinna vaxta- og arðgreiðslna til útlanda uxu þjóðartekjur nokkru minna eða um 4,6%.
       Vöxturinn einkenndist af miklum vexti einkaneyslu sem óx um 7,5% og fjárfestingar sem óx um 12,8%. Þjóðarútgjöldin uxu því langt umfram landsframleiðsluna eða um 7,7% og leiddi það til verulegs halla á vöru- og þjónustuviðskiptum við útlönd.

 

Landsframleiðsla 2004 - áætlun - útgáfur  

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.