FRÉTT ÞJÓÐHAGSREIKNINGAR 06. DESEMBER 2013


Landsframleiðsla á fyrstu níu mánuðum ársins 2013 jókst um 3,1% að raungildi borið saman við fyrstu níu mánuði ársins 2012. Á sama tíma drógust þjóðarútgjöld, sem eru samtala neyslu og fjárfestingar, saman um 0,5%. Einkaneysla jókst um 1,3% og samneysla um 1,4%. Fjárfesting dróst hins vegar saman um 7,1%. Útflutningur jókst um 4,2% á sama tíma og innflutningur dróst saman um 1,9%. Hagvöxtur fyrstu níu mánuði ársins er því drifinn áfram af breytingum í utanríkisverslun.

Landsframleiðsla á 3. ársfjórðungi 2013, án árstíðaleiðréttingar, jókst um 4,9% frá sama ársfjórðungi fyrra árs en árstíðaleiðrétt landsframleiðsla jókst um 6,1% frá 2. ársfjórðungi 2013.

Landsframleiðslan á 3. ársfjórðungi 2013 - Hagtíðindi

Talnaefni 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.