FRÉTT ÞJÓÐHAGSREIKNINGAR 10. MARS 2015

Landsframleiðslan á 4. ársfjórðungi 2014 jókst um 3% borið saman við 4. ársfjórðung 2013. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld, sem eru samtala neyslu og fjárfestingar, um 8,2%. Einkaneysla jókst um 4,5%, samneysla um 2,1% og fjárfesting um 14,2%. Útflutningur dróst saman um 2,9% á sama tíma og innflutningur jókst um 6,7%.

Árstíðaleiðrétt landsframleiðsla jókst um 0,2% milli 3. og 4. ársfjórðungs 2014. Þar af jókst einkaneysla um 1,6% og samneysla um 0,7% en fjárfesting dróst saman um 6,9%.

Landsframleiðslan á 4. ársfjórðungi 2014 - Hagtíðindi

Talnaefni (sjá Landsframleiðsla eftir ársfjórðungum 1997-2014)

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.