FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 21. DESEMBER 2011


Aflaverðmæti 114,2 milljarðar króna
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 114,2 milljörðum króna fyrstu níu mánuði ársins 2011 samanborið við 103,2 milljarða á sama tímabili 2010. Aflaverðmæti hefur því aukist um 11 milljarða króna eða 10,6% á milli ára.

Aflaverðmæti botnfisks fyrstu níu mánuði ársins nam 67,6 milljörðum króna og dróst saman um 4,7% sé miðað við sama tímabili árið 2010. Verðmæti þorskafla var um 32,4 milljarðar og dróst saman um 2,8% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 8,4 milljörðum og dróst saman um 30,4%, en verðmæti karfaaflans nam 9,6 milljörðum, sem er 12% aukning miðað við sama tímabil árið  2010. Verðmæti ufsaaflans dróst saman um 0,8% milli ára í 6,4 milljarða.

Verðmæti flatfiskafla nam tæpum 7,6 milljörðum króna fyrstu níu mánuði ársins sem er 0,6% aukning frá fyrra ári. Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 58,9% milli ára og nam 35,6 milljörðum.

Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 49,3 milljörðum króna og jókst um 16,2% frá árinu 2010. Aflaverðmæti sjófrystingar voru 43,9 milljarðar sem er 17,9% aukning frá fyrra ári. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands nam um 15 milljörðum króna, sem er nær sama upphæð og í janúar-september 2010.

Verðmæti afla janúar-september 2011      
Milljónir króna September Janúar–september Breyting frá
    2010 2011 2010 2011 fyrra ári í %
Verðmæti alls 10.834,7 15.390,7 103.196,7 114.152,7 10,6
Botnfiskur 6.831,2 7.167,6 71.003,3 67.644,1 -4,7
Þorskur 3.185,7 3.481,5 33.292,5 32.375,3 -2,8
Ýsa 1.014,4 849,9 12.090,2 8.408,9 -30,4
Ufsi 873,1 708,9 6.474,0 6.419,3 -0,8
Karfi 949,2 1.225,7 8.568,7 9.598,7 12,0
Úthafskarfi 0,0 0,0 3.649,0 4.027,9 10,4
Annar botnfiskur 808,9 901,6 6.929,0 6.814,1 -1,7
Flatfisksafli 557,3 801,9 7.541,2 7.582,9 0,6
Uppsjávarafli 3.183,6 7.101,2 22.386,1 35.565,8 58,9
Síld 1.847,0 3.374,5 6.056,1 6.931,7 14,5
Loðna 0,0 0,0 2.494,4 8.683,6 248,1
Kolmunni 50,6 48,8 3.232,0 215,3 -93,3
Annar uppsjávarafli 1.286,1 3.677,9 10.603,7 19.735,2 86,1
Skel- og krabbadýraafli 251,7 301,3 2.158,3 2.414,5 11,9
Rækja 136,4 160,5 1.309,3 1.566,9 19,7
Annar skel- og krabbad.afli 115,2 140,7 849,0 847,6 -0,2
Annar afli 10,9 18,8 107,7 945,3 777,6

Verðmæti afla eftir tegund löndunar janúar-september 2011  
Milljónir króna September Janúar–september Breyting frá
    2010 2011 2010 2011 fyrra ári í %
Verðmæti alls 10.834,7 15.390,7 103.196,7 114.152,7 10,6
Til vinnslu innanlands 4.785,5 6.039,2 42.396,5 49.274,1 16,2
Í gáma til útflutnings 788,6 664,0 7.291,1 5.077,2 -30,4
Landað erlendis í bræðslu 0,0 0,0 83,6 145,5 74,1
Sjófryst 3.763,1 7.072,1 37.197,9 43.865,0 17,9
Á markað til vinnslu innanlands 1.424,2 1.514,0 14.975,3 15.059,3 0,6
Sjófryst til endurvinnslu innanl. 33,3 62,5 239,4 140,5 -41,3
Selt úr skipi erlendis 0,0 0,0 0,0 0,0
Fiskeldi 0,0 0,0 72,7 0,0
  Aðrar löndunartegundir 40,0 39,0 940,2 591,2 -37,1

Verðmæti afla eftir staðsetningu verkunarstaðar janúar-september 2011
Milljónir króna September Janúar–september Breyting frá
    2010 2011 2010 2011 fyrra ári í %
Verðmæti alls 10.834,7 15.390,7 103.196,7 114.152,7 10,6
Höfuðborgarsvæði 1.769,1 2.654,4 19.153,4 21.100,0 10,2
Suðurnes 1.788,2 2.386,0 17.365,0 18.726,6 7,8
Vesturland 370,9 584,3 4.546,8 5.392,2 18,6
Vestfirðir 604,2 643,0 5.371,3 5.777,5 7,6
Norðurland vestra 715,8 859,9 7.422,3 7.350,7 -1,0
Norðurland eystra 2.179,6 2.886,6 16.255,9 18.965,0 16,7
Austurland 1.621,7 2.495,6 14.425,3 16.802,7 16,5
Suðurland 996,6 2.216,9 11.386,7 14.815,4 30,1
  Útlönd 788,6 664,0 7.269,9 5.222,6 -28,2

Talnaefni

 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.