FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 17. DESEMBER 2008


Aflaverðmæti 70 milljarðar króna
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 70 milljörðum króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2008 samanborið við 62,8 milljarða á sama tímabili árið 2007. Aflaverðmæti hefur aukist um um 7,2 milljarða eða 11,4% á milli ára. Aflaverðmæti í september nam 6,7 milljörðum miðað við 4,4 milljarða í september 2007.

Aflaverðmæti botnfisks janúar til september 2008 nam 49,3 milljörðum og jókst um 5,1% miðað við sama tímabili árið 2007. Verðmæti þorskafla var 23,4 milljarðar og jókst um 1,2% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 11,5 milljörðum, jókst um 9,8% og verðmæti karfaaflans nam tæpum 5 milljörðum sem er sambærilegt við sama tímabil árið 2007. Verðmæti ufsaaflans jókst umtalsvert, nam 4,4 milljörðum sem er 41,8% aukning miðað við fyrstu níu mánuði ársins 2007.

Verðmæti flatfiskafla janúar til september nam 4,5 milljarði og jókst um 27,9% frá fyrra ári. Aflaverðmæti uppsjávarafla nam 15,2 milljörðum sem er 31,4% aukning miðað við fyrstu níu mánuði ársins 2007. Verðmæti síldaraflans janúar til september nam rúmum 6 milljörðum sem er 120,7% aukning frá sama tímabili árið 2007. Verðmæti makríls jókst einnig mikið á milli ára, nam 4,6 milljörðum samanborið við 1,6 milljarð fyrstu níu mánuði ársins 2007.
 
Verðmæti afla, sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 27,5 milljörðum króna sem er aukning um 3,7% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands dróst saman um 5%, nam 9,7 milljörðum fyrstu níu mánuði ársins. Aflaverðmæti sjófrystingar nam 22,2 milljörðum, jókst um 22,2% og verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 8,4 milljörðum sem er 30,3% aukning frá sama tímabili árið 2007.

Verðmæti afla janúar-september 2008    
Milljónir króna September Janúar–september Breyting frá
    2007 2008 2007 2008 fyrra ári í %
             
Verðmæti alls 4.388,5 6.671,1 62.839,8 70.019,1 11,4
             
Botnfiskur 3.615,8 4.654,9 46.875,8 49.284,4 5,1
  Þorskur 1.534,4 2.054,6 23.098,1 23.384,4 1,2
  Ýsa 1.013,9 1.146,0 10.468,9 11.492,6 9,8
  Ufsi 232,3 330,3 3.096,6 4.390,4 41,8
  Karfi 291,0 527,7 4.947,1 4.982,0 0,7
  Úthafskarfi 107,0 0,0 1.831,0 921,3 -49,7
  Annar botnfiskur 437,3 596,3 3.434,2 4.113,7 19,8
Flatfiskur 209,3 447,7 3.530,1 4.515,9 27,9
Uppsjávarafli 503,3 1.494,1 11.528,8 15.151,2 31,4
  Síld 487,3 1.286,9 2.728,0 6.021,3 120,7
  Loðna 0,0 0,0 4.247,2 1.845,5 -56,5
  Kolmunni 10,0 7,6 2.996,0 2.708,0 -9,6
  Annar uppsjávarafli 6,0 199,7 1.557,6 4.576,4 193,8
Skel- og krabbadýraafli 60,0 74,3 903,6 1.042,3 15,3
  Rækja 18,8 12,7 222,3 258,2 16,2
  Annar skel- og krabbad.afli 41,2 61,6 681,4 784,1 15,1
Annar afli 0,0 0,1 1,5 25,2 1.575,2
Verðmæti afla eftir tegund löndunar janúar-september 2008  
Milljónir króna September Janúar–september Breyting frá
    2007 2008 2007 2008 fyrra ári í %
             
Verðmæti alls 4.388,5 6.671,1 62.839,8 70.019,1 11,4
             
  Til vinnslu innanlands 1.465,2 2.096,3 26.489,1 27.480,7 3,7
  Í gáma til útflutnings 665,0 961,5 6.479,3 8.439,7 30,3
  Landað erlendis í bræðslu 89,8 72,2 94,5 297,7 215,1
  Sjófryst 1.208,8 2.281,2 18.159,5 22.188,9 22,2
  Á markað til vinnslu innanlands 806,4 989,3 10.206,2 9.697,0 -5,0
  Á markað, í gáma til útflutnings 120,5 237,0 920,0 1.100,8 19,7
  Sjófryst til endurvinnslu innanl. 19,3 0,0 79,4 183,2 130,8
  Selt úr skipi erlendis 0,0 0,0 108,3 33,4 -69,1
  Fiskeldi 5,8 0,0 43,8 66,6 52,1
  Aðrar löndunartegundir 7,7 33,6 259,7 531,0 104,4
Verðmæti afla eftir staðsetningu verkunarstaðar janúar-september 2008
Milljónir króna September Janúar–september Breyting frá
    2007 2008 2007 2008 fyrra ári í %
             
Verðmæti alls 4.388,5 6.671,1 62.839,8 70.019,1 11,4
             
  Höfuðborgarsvæði 876,7 1.010,9 11.157,5 11.119,0 -0,3
  Suðurnes 790,8 1.178,9 11.590,2 12.430,1 7,2
  Vesturland 204,2 232,5 3.339,2 3.185,5 -4,6
  Vestfirðir 229,5 316,8 3.155,4 3.138,2 -0,5
  Norðurland vestra 241,7 405,3 3.808,3 4.103,7 7,8
  Norðurland eystra 540,4 1.111,5 8.875,5 9.965,7 12,3
  Austurland 407,7 694,6 8.546,6 10.733,9 25,6
  Suðurland 370,6 711,1 5.909,6 6.817,6 15,4
  Útlönd 726,8 1.009,3 6.457,5 8.525,4 32,0

Þessar upplýsingar byggja á vigtar- og ráðstöfunarskýrslum sem Fiskistofa safnar frá fiskkaupendum. Fyrir árið 2008 er stuðst við bráðabirgðatölur en endanlegar tölur liggja að baki talna fyrir árið 2007 Athuganir benda til þess að endanlegar tölur séu að hámarki 1-2% hærri en bráðabirgðatölur þegar á heildina er litið en fyrir örfáar fisktegundir getur munurinn þó orðið meiri.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.