FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 22. DESEMBER 2005


Aflaverðmæti síldar tvöfaldaðist milli ára
Á tímabilinu janúar til september 2005 var aflaverðmæti íslenskra skipa af öllum miðum 51,6 milljarðar króna samanborið við 50,8 milljarða á sama tímabili 2004. Aflaverðmæti jókst um rúmar 800 milljónir króna, á verðlagi hvors árs fyrir sig (1,6%). Verðmæti botnfiskaflans nam tæpum 35 milljörðum króna og jókst um tæplega 300 milljónir frá í fyrra (0,7%). Verðmæti þorskaflans var 18,2 milljarðar króna og dróst saman um 2,4 milljarða (-11,6%). Aflaverðmæti ýsu nam 6,5 milljörðum og jókst um 1,4 milljarða (27%). Verðmæti karfa var 4,3 milljarðar króna og jókst um 1,5 milljarða (55%) en verðmæti úthafskarfa lækkaði umtalsvert, nam 1,7 milljörðum króna sem er tæpum milljarði minna en í fyrra (-37%). Verðmæti flatfiskaflans var 4,2 milljarðar og dróst saman um tæpar 900 milljónir króna (-17%). Aflaverðmæti síldar nam 4,5 milljörðum sem er aukning um 2,3 milljarða króna og hefur þar af leiðandi ríflega tvöfaldast milli ára (107%). Aflaverðmæti loðnu jókst á tímabilinu um rúmar 800 milljónir, var 4,7 milljarðar króna (22%) en samdráttur var í verðmæti kolmunnaaflans um rúmar 700 milljónir, nam 1,4 milljörðum (-34%). Verðmæti rækjuaflans nam tæplega 700 milljónum sem er 1,1 milljarði minna en 2004 (-63%).

Verðmæti afla í beinni sölu útgerða nam 20,7 milljörðum króna og dróst saman um tæpa 2,3 milljarða  milli ára (-9,9%). Verðmæti afla sem seldur er á fiskmörkuðum til vinnslu innanlands var 6,9 milljarðar og dróst saman um rúmar 200 milljónir frá fyrra ári (-3,4%). Verðmæti óunnins afla sem fluttur var út í gámum var 5,1 milljarður króna sem er tæpra 600 milljóna króna aukning frá 2004 (12,9%).  Verðmæti sjófrystingar jókst um 3,2 milljarða (22%), nam 17,6 milljörðum króna á fyrstu níu mánuðum ársins.

Á höfuðborgarsvæðinu var unnið úr afla að verðmæti 9,1 milljarður króna sem er aukning um 1,6 milljarða (22%). Á Suðurnesjum var unnið úr afla að verðmæti 8,9 milljarða króna sem er svipað aflaverðmæti og í fyrra (1,7%). Á Suðurlandi jókst verðmæti afla til vinnslu um tæpan milljarð en á Vesturlandi dróst verðmæti afla sem þar var unnin saman um 1,7 milljarða króna milli ára (-46%).

Upplýsingar um afla og aflaverðmæti¹ janúar-ágúst 2005 er að finna í talnaefni.

Verðmæti afla janúar–september 2005
Milljónir kr.   Breytingar frá
    September Janúar–september fyrra ári í %
    2004 2005 2004 2005 Jan.–sept.
             
Verðmæti alls 4.403,5 4.059,5 50.776,6 51.589,4 1,6
             
Botnfiskur 3.530,9 3.086,5 34.737,4 34.989,0 0,7
  Þorskur 1.936,2 1.570,3 20.627,4 18.233,8 -11,6
  Ýsa 713,4 689,6 5.113,7 6.495,7 27,0
  Ufsi 346,6 200,2 1.767,4 1.990,0 12,6
  Karfi 187,1 297,6 2.763,5 4.292,4 55,3
  Úthafskarfi 131,0 29,8 2.632,7 1.666,0 -36,7
  Annar botnfiskur 216,6 299,0 1.832,6 2.311,0 26,1
Flatfiskur 370,5 368,3 5.034,5 4.170,4 -17,2
Uppsjávarafli 362,6 545,7 8.729,3 11.140,0 27,6
  Síld 284,8 545,5 2.186,6 4.526,8 107,0
  Loðna 0,0 0,0 3.902,9 4.746,8 21,6
  Kolmunni 77,8 0,2 2.133,0 1.407,8 -34,0
  Annar uppsjávarafli 0,0 0,0 506,7 458,6 -9,5
Skel- og krabbadýraafli 139,5 57,8 2.265,5 1.284,7 -43,3
  Rækja 128,3 23,7 1.810,8 674,3 -62,8
  Annar skel- og krabbad.afli 11,2 34,1 454,7 610,4 34,3
Annar afli 0,0 1,1 9,9 5,3 -46,3
Verðmæti afla eftir tegund löndunar janúar–september 2005
Milljónir kr.   Breytingar frá
    September Janúar–september fyrra ári í %
    2004 2005 2004 2005 Jan.–sept.
             
Verðmæti alls 4.403,5 4.059,5 50.776,6 51.589,4 1,6
             
Til vinnslu innanlands 1.702,7 1.381,6 22.943,7 20.666,0 -9,9
Í gáma til útflutnings 712,4 523,2 4.516,3 5.096,9 12,9
Landað erlendis í bræðslu 2,1 0,0 91,7 62,2 -32,1
Sjófryst 1.215,5 1.445,8 14.462,3 17.648,0 22,0
Á markað til vinnslu innanlands 570,7 593,2 7.191,4 6.946,8 -3,4
Á markað, í gáma til útflutnings 131,1 107,9 782,0 791,8 1,3
Sjófryst til endurvinnslu innanl. 41,8 0,0 299,4 155,5 -48,1
Selt úr skipi erlendis 19,7 0,0 306,5 54,6 -82,2
Fiskeldi 0,1 0,0 31,1 9,5 -69,6
Aðrar löndunartegundir 7,6 7,8 152,2 158,1 3,8
Verðmæti afla eftir staðsetningu verkunarstaðar janúar–september 2005
Milljónir kr.   Breytingar frá
    September Janúar–september fyrra ári í %
    2004 2005 2004 2005 Jan.–sept.
             
Verðmæti alls 4.403,5 4.059,5 50.776,6 51.589,4 1,6
             
Höfuðborgarsvæði 687,7 721,9 7.471,5 9.118,1 22,0
Suðurnes 720,6 763,7 8.734,1 8.878,5 1,7
Vesturland 190,3 164,3 3.663,3 1.997,1 -45,5
Vestfirðir 220,8 296,6 3.208,6 2.785,7 -13,2
Norðurland vestra 444,6 292,7 3.968,0 3.686,3 -7,1
Norðurland eystra 733,3 518,2 8.022,3 8.873,2 10,6
Austurland 320,7 264,6 6.162,5 5.533,9 -10,2
Suðurland 368,6 543,3 4.709,7 5.681,0 20,6
Útlönd 717,0 494,1 4.836,4 5.035,6 4,1

¹Þessar upplýsingar byggja á vigtar- og ráðstöfunarskýrslum sem Fiskistofa safnar frá fiskkaupendum. Fyrir árið 2005 er stuðst við bráðabirgðatölur en endanlegar tölur liggja að baki talna fyrir árið 2004. Athuganir benda til þess að endanlegar tölur séu að hámarki 1-2% hærri en bráðabirgðatölur þegar á heildina er litið en fyrir örfáar fisktegundir getur munurinn þó orðið meiri.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.