FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 30. DESEMBER 2004

Aflaverðmætið 50,6 milljarðar króna og dregst saman um 3%
Á fyrstu níu mánuðum ársins 2004 var aflaverðmæti íslenskra skipa af öllum miðum 50,6 milljarðar króna samanborið við 52,1 milljarð króna á sama tímabili 2003. Aflaverðmæti hefur því dregist saman um 3% á milli ára eða rúmlega 1,5 milljarða króna, á verðlagi hvors árs fyrir sig. Verðmæti botnfiskaflans var 34,6 milljarðar króna og er það aukning um rúmar 300 milljónir króna (1%) á milli ára. Verðmæti þorsks hefur á þessu tímabili aukist um 1,4 milljarða króna (7,1%) og verðmæti ýsuaflans um 1,2 milljarða (30,4%) en karfaafli hefur dregist saman um 1,1 milljarð króna (-28,5%) og úthafskarfaaflinn hefur dregist saman um 600 milljónir króna (-19,1%). Verðmæti flatfisktegunda er liðlega 100 milljónum meira í ár (2,1%) en á sama tímabili 2003 en verðmæti uppsjávartegunda hefur dregist saman um einn milljarð króna (-10,2%). Verðmæti skel- og krabbadýraaflans hefur einnig dregist saman um einn milljarð króna (-30,7%) og er það að stærstum hluta vegna rækju. 
       Á tímabilinu hefur mikil hlutfallsleg aukning orðið í útflutningi á ferskum fiski í gámum (60,4%) og þannig nam verðmæti þessa afla 4,5 milljörðum króna. Einnig hefur orðið mikil aukning í verðmæti þess afla sem keyptur er á innlendum fiskmörkuðum en er fluttur óunninn á erlenda markaði í gámum (70,6%). Í krónum talið hefur verðmæti afla í þessum löndunarflokkum vaxið um 2 milljarða frá árinu 2003. Verðmæti afla í beinni sölu útgerða til vinnslustöðva var 22,9 milljarðar króna samanborið við 24,5 milljarða króna á sama tímabili 2003 og er það samdráttur um 1,6 milljarða króna (-6,6%). Verðmæti afla sem seldur var á fiskmörkuðum til fiskvinnslu innanlands var 7,2 milljarðar króna og dróst saman um tæplega 200 milljónir króna (-2,4%). Verðmæti sjófrysts afla var 14,3 milljarðar króna samanborið við 15,4 milljarða króna á árinu 2003 og er það samdráttur um  1,1 milljarð króna (7,3%).
       Á Suðurnesjum var unnið úr afla að verðmæti 8,7 milljarða króna og er það aukning um 560 milljónir króna á milli ára eða 6,8%. Næst þar á eftir kom Norðurland eystra en þar var unnið úr afla að verðmæti 7,9 milljarða króna sem er samdráttur um tæpan hálfan milljarð króna (-5,4%). Mestur var samdráttur á Austurlandi en þar var unnið úr afla að verðmæti 6,2 milljarða króna sem er 1,1 milljarði króna minna (-15%) en á sama tímabili á árinu 2003.
       Upplýsingar um afla og aflaverðmæti¹ janúar-september 2004 er að finna í talnaefni.

¹ Þessar upplýsingar byggja á vigtar- og ráðstöfunarskýrslum sem Fiskistofa safnar frá fiskkaupendum. Fyrir árið 2004 er stuðst við bráðabirgðatölur en endanlegar tölur liggja að baki talna fyrir árið 2003. Athuganir benda til þess að endanlegar tölur séu að hámarki 1-2% hærri en bráðabirgðatölur þegar á heildina er litið en fyrir örfáar fisktegundir getur munurinn þó orðið meiri.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.