FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 21. FEBRÚAR 2012


Aflaverðmæti 143 milljarðar króna
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 143 milljörðum króna fyrstu 11 mánuði ársins 2011 samanborið við tæpa 125 milljarða á sama tímabili 2010. Aflaverðmæti hefur því aukist um 18,3 milljarða króna eða 14,7% á milli ára.

Aflaverðmæti botnfisks fyrstu 11 mánuði ársins nam 87,4 milljörðum króna og jókst um 0,7% sé miðað við sama tímabili árið 2010. Verðmæti þorskafla var um 42,3 milljarðar og jókst um 2,3% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 10,9 milljörðum og dróst saman um 23,8%, en verðmæti karfaaflans nam 13,3 milljörðum, sem er 21,9% aukning miðað við sama tímabil árið  2010. Verðmæti ufsaaflans jókst um 6,2% milli ára í 8,3 milljarða.

Verðmæti flatfiskafla nam tæpum 9,4 milljörðum króna fyrstu 11 mánuði ársins sem er 9,5% aukning frá fyrra ári. Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 59% milli ára og nam 42,4 milljörðum. Stafar sú aukning að stærstum hluta af verðmætaaukningu loðnuaflans, sem jókst um 256% á milli ára og nam 8,9 milljörðum króna.

Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 60,5 milljörðum króna og jókst um 17,7% frá árinu 2010. Aflaverðmæti sjófrystingar var 57,4 milljarðar sem er 25,8% aukning frá fyrra ári. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands nam um 18 milljörðum króna, sem er 1,1% aukning frá janúar-nóvember 2010.

Verðmæti afla janúar-nóvember 2011      
Milljónir króna Nóvember Janúar-nóvember Breyting frá
    2010 2011 2010 2011 fyrra ári í %
Verðmæti alls 10.659,3 15.916,9 124.681,2 143.023,2 14,7
Botnfiskur 7.940,2 10.784,1 86.853,4 87.424,0 0,7
Þorskur 4.053,3 5.437,6 41.326,8 42.269,0 2,3
Ýsa 1.209,2 1.351,8 14.314,7 10.907,0 -23,8
Ufsi 586,4 991,6 7.818,2 8.299,4 6,2
Karfi 1.076,7 2.050,2 10.904,5 13.295,1 21,9
Úthafskarfi 0,0 0,0 3.649,0 4.027,9 10,4
Annar botnfiskur 1.014,6 952,8 8.840,3 8.625,6 -2,4
Flatfisksafli 468,6 861,6 8.561,3 9.370,9 9,5
Uppsjávarafli 2.121,1 4.058,8 26.678,6 42.424,9 59,0
Síld 2.116,2 3.904,6 10.197,0 13.641,0 33,8
Loðna 0,0 153,3 2.494,4 8.884,8 256,2
Kolmunni 1,8 0,9 3.262,1 257,4 -92,1
Annar uppsjávarafli 3,1 0,0 10.725,1 19.641,7 83,1
Skel- og krabbadýraafli 115,7 209,7 2.454,9 2.844,3 15,9
Rækja 46,8 127,8 1.419,3 1.815,3 27,9
Annar skel- og krabbad.afli 68,9 81,8 1.035,6 1.029,0 -0,6
Annar afli 13,7 2,8 133,0 959,1 621,3

Verðmæti afla eftir tegund löndunar janúar-nóvember 2011  
Milljónir króna Nóvember Janúar-nóvember Breyting frá
    2010 2011 2010 2011 fyrra ári í %
Verðmæti alls 10.659,3 15.916,9 124.681,2 143.023,2 14,7
Til vinnslu innanlands 4.685,6 6.147,8 51.438,3 60.518,1 17,7
Í gáma til útflutnings 496,2 537,2 8.342,9 6.150,4 -26,3
Landað erlendis í bræðslu 2,3 0,0 85,9 145,5 69,3
Sjófryst 3.846,2 7.744,1 45.602,4 57.388,0 25,8
Á markað til vinnslu innanlands 1.581,4 1.453,6 17.828,3 18.016,9 1,1
Sjófryst til endurvinnslu innanl. 0,0 0,0 270,0 141,7 -47,5
Selt úr skipi erlendis 0,0 0,0 0,0 0,0
Fiskeldi 0,0 0,0 72,7 0,0
  Aðrar löndunartegundir 47,5 34,1 1.040,6 662,7 -36,3

Verðmæti afla eftir staðsetningu verkunarstaðar janúar-nóvember 2011
Milljónir króna Nóvember Janúar-nóvember Breyting frá
    2010 2011 2010 2011 fyrra ári í %
Verðmæti alls 10.659,3 15.916,9 124.681,2 143.023,2 14,7
Höfuðborgarsvæði 1.905,6 3.884,6 23.029,4 28.191,9 22,4
Suðurnes 2.064,9 2.680,0 21.359,2 24.035,7 12,5
Vesturland 445,7 558,7 5.382,4 6.478,0 20,4
Vestfirðir 573,9 982,8 6.556,9 7.354,3 12,2
Norðurland vestra 684,7 1.184,1 9.082,9 9.412,5 3,6
Norðurland eystra 2.141,9 2.171,5 20.553,7 23.019,5 12,0
Austurland 1.113,8 1.890,0 16.791,2 20.071,5 19,5
Suðurland 1.230,2 2.027,9 13.601,4 18.164,0 33,5
  Útlönd 498,6 537,2 8.324,1 6.295,9 -24,4

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.