Aflaverðmæti 75,3 milljarðar króna
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 75,3 milljörðum króna á fyrstu ellefu mánuðum ársins 2007 samanborið við 70,5 milljarða á sama tímabili 2006. Aukningin nemur tæpum 5 milljörðum króna eða 6,7% milli ára. Aflaverðmæti í nóvember var 6 milljarðar sem er svipað og í nóvember 2006.
Aflaverðmæti botnfisks var í lok nóvember orðið 56,7 milljarðar miðað við 52,9 milljarða á sama tíma árið 2006 og hefur því aukist um 7% á milli ára. Verðmæti þorskafla var 27,5 milljarðar og jókst um 10,8% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 13,5 milljörðum, sem er 27,7% aukning. Aflaverðmæti karfa dróst saman um rúm 10% á milli ára, var 5,6 milljarðar. Ufsaafli dróst saman að verðmæti um 8,5%, var 4 milljarðar króna fyrstu ellefu mánuði ársins 2007.
Verðmæti flatfiskafla dróst saman um 17%, nam 4 milljörðum króna. Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 14,9% og nam 13,7 milljörðum. Munar þar mestu um verðmæti loðnu sem nam 4,2 milljörðum samanborið við 2,2 milljarða í fyrra. Verðmæti síldarafla var 4,9 milljarðar og dróst saman um 14,6% á milli ára. Aflaverðmæti kolmunna var 3 milljarðar samanborið við 3,6 milljarða fyrstu ellefu mánuði ársins 2006.
Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands var 31,1 milljarðar króna, sem er aukning um 4,5 milljarða eða 17,1% á milli ára. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 8,5%, var 12 milljarðar. Aflaverðmæti sjófrystingar var 22,2 milljarðar og dróst saman um 5,3% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 8 milljörðum sem er 7,1% aukning.
Verðmæti afla janúar–nóvember 2007 | ||||||
Milljónir kr. | Breytingar frá | |||||
Nóvember | Janúar–nóvember | fyrra ári í % | ||||
2006 | 2007 | 2006 | 2007 | Jan – nóv | ||
Verðmæti alls | 6.201,4 | 5.951,8 | 70.520,3 | 75.256,6 | 6,7 | |
Botnfiskur | 4.608,0 | 4.698,3 | 52.938,4 | 56.658,7 | 7,0 | |
Þorskur | 2.454,2 | 2.196,1 | 24.861,0 | 27.543,8 | 10,8 | |
Ýsa | 943,7 | 1.417,6 | 10.560,0 | 13.484,8 | 27,7 | |
Ufsi | 374,1 | 414,4 | 4.318,9 | 3.952,1 | -8,5 | |
Karfi | 459,3 | 318,9 | 6.230,8 | 5.601,5 | -10,1 | |
Úthafskarfi | 0,0 | 0,0 | 3.129,9 | 1.835,6 | -41,4 | |
Annar botnfiskur | 376,7 | 351,3 | 3.837,8 | 4.241,0 | 10,5 | |
Flatfiskur | 326,9 | 234,6 | 4.836,5 | 4.014,2 | -17,0 | |
Uppsjávarafli | 1.264,2 | 1.014,0 | 11.889,6 | 13.662,0 | 14,9 | |
Síld | 1.262,3 | 1.014,0 | 5.682,9 | 4.850,5 | -14,6 | |
Loðna | 0,0 | 0,0 | 2.179,9 | 4.247,2 | 94,8 | |
Kolmunni | 0,1 | 0,0 | 3.575,8 | 3.002,8 | -16,0 | |
Annar uppsjávarafli | 1,8 | 0,0 | 450,9 | 1.561,5 | 246,3 | |
Skel- og krabbadýraafli | 2,3 | 4,9 | 852,8 | 920,3 | 7,9 | |
Rækja | 0,0 | 0,0 | 286,7 | 225,6 | -21,3 | |
Annar skel- og krabbad.afli | 2,3 | 4,9 | 566,1 | 694,7 | 22,7 | |
Annar afli | 0,0 | 0,0 | 2,9 | 1,5 | -47,7 |
Verðmæti afla eftir tegund löndunar janúar–nóvember 2007 | ||||||
Milljónir kr. | Breytingar frá | |||||
Nóvember | Janúar–nóvember | fyrra ári í % | ||||
2006 | 2007 | 2006 | 2007 | Jan – nóv | ||
Verðmæti alls | 6.201,4 | 5.951,8 | 70.520,3 | 75.256,6 | 6,7 | |
Til vinnslu innanlands | 2.296,3 | 2.112,3 | 26.574,4 | 31.120,7 | 17,1 | |
Í gáma til útflutnings | 688,8 | 797,7 | 7.465,8 | 7.996,3 | 7,1 | |
Landað erlendis í bræðslu | 0,0 | 0,0 | 167,1 | 111,1 | 0,0 | |
Sjófryst | 2.121,3 | 1.919,8 | 23.499,0 | 22.243,9 | -5,3 | |
Á markað til vinnslu innanlands | 961,4 | 945,1 | 11.082,1 | 12.025,1 | 8,5 | |
Á markað, í gáma til útflutnings | 121,7 | 99,5 | 1.387,0 | 1.173,0 | -15,4 | |
Sjófryst til endurvinnslu innanl. | 0,0 | 51,2 | 0,0 | 172,0 | 0,0 | |
Selt úr skipi erlendis | 0,0 | 0,0 | 97,2 | 108,3 | 11,5 | |
Fiskeldi | 0,4 | 0,0 | 42,3 | 3,3 | -92,1 | |
Aðrar löndunartegundir | 11,4 | 26,3 | 205,4 | 302,9 | 47,5 |
Verðmæti afla eftir staðsetningu verkunarstaðar janúar–nóvember 2007 | ||||||
Milljónir kr. | Breytingar frá | |||||
Nóvember | Janúar–nóvember | fyrra ári í % | ||||
2006 | 2007 | 2006 | 2007 | Jan – nóv | ||
Verðmæti alls | 6.201,4 | 5.951,8 | 70.520,3 | 75.256,6 | 6,7 | |
Höfuðborgarsvæði | 1.116,3 | 1.081,6 | 14.421,9 | 13.317,1 | -7,7 | |
Suðurnes | 1.164,7 | 1.073,9 | 12.109,3 | 14.113,6 | 16,6 | |
Vesturland | 268,8 | 278,3 | 2.751,2 | 3.824,9 | 39,0 | |
Vestfirðir | 384,2 | 227,3 | 3.917,5 | 3.741,0 | -4,5 | |
Norðurland vestra | 423,0 | 417,9 | 5.164,9 | 4.651,0 | -9,9 | |
Norðurland eystra | 777,3 | 855,8 | 8.851,5 | 10.677,5 | 20,6 | |
Austurland | 735,1 | 679,9 | 9.029,8 | 9.993,5 | 10,7 | |
Suðurland | 664,1 | 565,5 | 6.866,7 | 6.980,8 | 1,7 | |
Útlönd | 667,8 | 771,7 | 7.407,4 | 7.957,2 | 7,4 |
Þessar upplýsingar byggja á vigtar- og ráðstöfunarskýrslum sem Fiskistofa safnar frá fiskkaupendum. Fyrir árið 2007 er stuðst við bráðabirgðatölur en endanlegar tölur liggja að baki talna fyrir árið 2006. Athuganir benda til þess að endanlegar tölur séu að hámarki 1-2% hærri en bráðabirgðatölur þegar á heildina er litið en fyrir örfáar fisktegundir getur munurinn þó orðið meiri.
Talnaefni