FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 29. JÚNÍ 2004

Aflaverðmætið 19,6 milljarðar króna

Á fyrsta ársfjórðungi ársins 2004 var aflaverðmæti íslenskra skipa af öllum miðum nærri 19,6 milljarðar króna samanborið við tæplega 19,7 milljarða á sama tímabili 2003. Aflaverðmæti hefur því dregist saman um 0,4% á milli ára eða um nærri 76 milljónir króna. Verðmæti botnfiskaflans var 13,7 milljarðar króna og jókst um 360 milljónir króna (2,7%). Verðmæti þorsks var 9,4 milljarðar króna og jókst um tæplega 500 milljónir króna (5,6%). Verðmæti ýsuaflans nam 2 milljörðum króna og jókst verðmæti hans um 300 milljónir króna (17,9%). Verðmæti karfa var 1,1 milljarður króna og dróst því saman um 250 milljónir króna (-18,2%). Verðmæti loðnuaflans nam tæplega 3,6 milljörðum króna og dróst saman um rúmar 600 milljónir króna (-14,5%). Þá var verðmæti skel- og krabbadýraafla 394 milljónir króna en var 700 milljónir króna á sama tímabili 2003.
     Verðmæti afla í beinni sölu útgerða til vinnslustöðva var á tímabilinu 10 milljarðar króna samanborið við 10,8 milljarða á árinu 2003 og er það samdráttur um 7%. Verðmæti sjófrysts afla var 4,6 milljarðar króna en nam rúmum 4 milljörðum króna á fyrstu þremur mánuðum ársins 2003 og er þetta aukning um 13,5% á milli ára. Verðmæti afla sem seldur var á fiskmörkuðum til fiskvinnslu innanlands dróst saman um 5,9%, var 3 milljarðar króna samanborið við 3,2 milljarða króna á sama tímabili 2003. Í gámum var fluttur út ferskur fiskur fyrir 1,7 milljarða króna sem er aukning frá fyrra ári um 500 milljónir króna.
     Á Suðurnesjum var unnið úr afla að verðmæti 4,1 milljarður króna og er það aukning um 244 milljónir króna á milli ára eða 6,3%. Mestur samdráttur milli ára varð á Austurlandi, 447 milljónir króna eða sem nemur 14,5%. Verðmæti afla íslenskra skipa sem unninn var erlendis jókst um 30,4%, úr 1,2 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi ársins 2003 í nærri 1,6 milljarða króna á sama tímabili 2004.
     Upplýsingar um afla og aflaverðmæti janúar-mars 2004 er að finna í talnaefni.

¹ Þessar upplýsingar byggja á vigtar- og ráðstöfunarskýrslum sem Fiskistofa safnar frá fiskkaupendum. Fyrir árið 2003 er stuðst við bráðabirgðatölur en endanlegar tölur liggja að baki talna fyrir árið 2002. Athuganir benda til þess að endanlegar tölur séu að hámarki 1-2% hærri en bráðabirgðatölur þegar á heildina er litið en fyrir örfáar fisktegundir getur munurinn þó orðið meiri.

Talnaefni 
 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.