FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 31. ÁGÚST 2010


Aflaverðmæti 57 milljarðar króna
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam rúmum 57 milljörðum króna á fyrstu fimm mánuðum ársins 2010 samanborið við 43,1 milljarð á sama tímabili 2009. Aflaverðmæti hefur því aukist um tæpa 14 milljarða eða 32,4% á milli ára.

Aflaverðmæti botnfisks var í lok maí orðið 43,7 milljarðar og jókst um 29,5% frá sama tíma í fyrra þegar aflaverðmætið nam 33,8 milljörðum. Verðmæti þorskafla var um 22,2 milljarðar og jókst um 31,5% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 7,6 milljörðum og jókst um 11,8%, en verðmæti karfaaflans nam um 5,8 milljörðum, sem er 24,2% aukning frá árinu 2009. Verðmæti ufsaaflans jókst um 31% milli ára og nam rúmum 2,7 milljarði fyrstu fimm mánuði ársins.

Verðmæti flatfiskafla nam rúmum 4,1 milljarði króna í janúar til maí 2010, sem er 9,7% aukning frá fyrra ári. Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 67,4% milli ára og nam rúmum 8,5 milljörðum.
 
Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 24,5 milljörðum króna og jókst um 40,4% frá árinu 2009. Aflaverðmæti sjófrystingar var tæpir 18 milljarðar, sem er 47,1% aukning milli ára. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 47,5% milli ára og var um 9,5 milljarðar.

Verðmæti afla janúar-maí 2010
Milljónir króna Maí Janúar–maí Breyting frá
    2009 2010 2009 2010 fyrra ári í %
Verðmæti alls 8.111,0 11.225,2 43.149,4 57.108,4 32,4
Botnfiskur 5.945,6 8.643,3 33.752,2 43.718,9 29,5
Þorskur 2.476,4 3.694,2 16.895,1 22.218,0 31,5
Ýsa 1.358,9 1.627,2 6.840,6 7.646,9 11,8
Karfi 477,5 505,5 4.690,7 5.827,4 24,2
Ufsi 581,3 645,1 2.073,9 2.716,4 31,0
Annar botnfiskur 1.051,4 2.171,3 3.251,8 5.310,2 63,3
Flatfisksafli 1.304,2 1.070,1 3.771,2 4.136,8 9,7
Uppsjávarafli 550,3 1.106,9 5.091,5 8.524,6 67,4
Síld 300,8 84,7 1.193,8 410,7 -65,6
Loðna 0,0 0,0 412,3 2.494,4 504,9
Kolmunni 249,5 1.021,8 2.632,9 3.183,6 20,9
Annar uppsjávarafli 0,0 0,3 852,5 2.435,9 185,7
Skel- og krabbadýraafli 308,1 387,7 517,0 678,3 31,2
Rækja 159,0 172,6 316,1 419,9 32,9
Annar skel- og krabbad.afli 149,2 215,0 200,9 258,4 28,6
Annar afli 2,7 17,2 17,5 49,8 184,0

Verðmæti afla eftir tegund löndunar janúar-maí 2010
Milljónir króna Maí Janúar–maí Breyting frá
    2009 2010 2009 2010 fyrra ári í %
Verðmæti alls 8.111,0 11.225,2 43.149,4 57.108,4 32,4
Til vinnslu innanlands 2.729,7 4.086,9 17.451,4 24.500,0 40,4
Í gáma til útflutnings 1.208,5 942,2 5.608,4 4.393,4 -21,7
Landað erlendis í bræðslu 0,0 8,6 195,2 83,6
Sjófryst 2.667,3 3.996,6 12.194,6 17.937,2 47,1
Á markað til vinnslu innanlands 1.234,1 1.973,3 6.427,0 9.478,6 47,5
Á markað, í gáma til útflutnings* 135,9 562,6
Sjófryst til endurvinnslu innanl. 0,0 13,2 5,1 64,9 1.180,9
Selt úr skipi erlendis 0,0 0,0 263,3 0,0
Fiskeldi 14,6 3,1 39,9 23,7 -40,6
  Aðrar löndunartegundir 120,7 201,3 402,0 627,0 56,0
*Fyrir árið 2010 er ekki hægt að birta sundurliðaðar tölur um afla  sem seldur er í gegnum uppboðsmarkað innanlands og fer síðan í gám til útflutnings (og er unninn í útlöndum).

Verðmæti afla eftir staðsetningu verkunarstaðar janúar-maí 2010
Milljónir króna Maí Janúar–maí Breyting frá
    2009 2010 2009 2010 fyrra ári í %
Verðmæti alls 8.111,0 11.225,2 43.149,4 57.108,4 32,4
Höfuðborgarsvæði 1.572,6 1.745,4 7.557,1 10.699,1 41,6
Suðurnes 1.463,4 1.857,1 8.207,7 10.194,1 24,2
Vesturland 391,5 606,4 2.752,4 3.446,7 25,2
Vestfirðir 475,0 644,4 2.278,2 2.986,3 31,1
Norðurland vestra 709,2 949,4 2.533,6 3.775,2 49,0
Norðurland eystra 1.049,3 1.946,7 6.028,7 8.116,8 34,6
Austurland 804,2 1.210,6 4.490,6 6.774,8 50,9
Suðurland 497,3 1.314,4 3.595,5 6.638,8 84,6
  Útlönd 1.148,5 950,8 5.705,4 4.476,8 -21,5

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.