FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 17. ÁGÚST 2009


Aflaverðmæti 42 milljarðar króna
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam tæpum 42 milljörðum króna fyrstu fimm mánuði ársins 2009, samanborið við 40 milljarða á sama tímabili 2008. Aflaverðmæti hefur því aukist um tæpa 2 milljarða eða 4,2 % á milli ára.

Aflaverðmæti botnfisks var í lok maí orðið 33 milljarðar á árinu sem er aukning um 5,8% frá sama tíma í fyrra þegar aflaverðmætið nam tæpum 31 milljarði. Verðmæti þorskafla var um 16 milljarðar og stóð nokkurn vegin í stað milli ára. Aflaverðmæti ýsu nam um 6,5 milljörðum og dróst saman um 5,1% frá árinu 2008. Verðmæti karfaaflans nam tæpum 5 milljörðum, sem er 57% aukning frá fyrstu fimm mánuðum ársins 2008, og verðmæti ufsaaflans dróst saman um 6,3% milli ára í rúma 2 milljarða króna. Verðmæti annars botnfisksafla jókst í heild um 28% frá árinu 2008

Verðmæti flatfiskafla nam rúmum 3,5 milljörðum króna í janúar til maí 2009, sem er 40% aukning frá fyrra ári. Aflaverðmæti uppsjávarafla dróst hins vegar saman um 17% milli ára og nam 5 milljörðum.
 
Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam um 17 milljörðum króna fyrstu fimm mánuði ársins og jókst um 1,4% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands dróst saman um 8,2% milli ára og var um 6 milljarðar króna. Aflaverðmæti sjófrystingar nam 12 milljörðum, samanborið við 11 milljarða árið áður. Verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam um 5,6 milljörðum, sem er 20,5% aukning miðað við tímabilið janúar til maí 2008.

Verðmæti afla janúar-maí 2009    
Milljónir króna Maí Janúar–maí Breyting frá
    2008 2009 2008 2009 fyrra ári í %
Verðmæti alls 8.271 6.981 39.914 41.598 4,2
Botnfiskur 6.036 5.044 30.896 32.673 5,8
Þorskur 3.163 2.061 16.459 16.392 -0,4
Ýsa 1.104 1.120 6.901 6.550 -5,1
Ufsi 541 551 2.213 2.073 -6,3
Karfi 367 418 2.935 4.600 56,7
Úthafskarfi 311 405 311 405 -
Annar botnfiskur 550 489 2.077 2.652 27,7
Flatfisksafli 1.086 1.086 2.506 3.518 40,4
Uppsjávarafli 850 582 6.007 4.987 -17,0
Síld 65 333 451 1.226 172,0
Loðna 0 0 1.846 341 -81,5
Kolmunni 785 249 2.680 2.568 -4,2
Annar uppsjávarafli 0 0 1.031 852 -17,3
Skel- og krabbadýraafli 298 268 497 410 -17,5
Rækja 75 125 149 219 47,4
Annar skel- og krabbad.afli 223 144 349 191 -45,1
Annar afli 2 0 7 10 44,6

Verðmæti afla eftir tegund löndunar janúar-maí 2009  
Milljónir króna Maí Janúar–maí Breyting frá
    2008 2009 2008 2009 fyrra ári í %
Verðmæti alls 8.271 6.981 39.914 41.598 4,2
Til vinnslu innanlands 3.282 2.360 16.535 16.768 1,4
Í gáma til útflutnings 1.053 1.175 4.614 5.561 20,5
Landað erlendis í bræðslu 22 0 126 131 3,2
Sjófryst 2.392 2.493 11.179 12.002 7,4
Á markað til vinnslu innanlands 1.250 743 6.461 5.934 -8,2
Á markað, í gáma til útflutnings 121 117 494 543 9,9
Sjófryst til endurvinnslu innanl. 21 0 101 5 -95,0
Selt úr skipi erlendis 0 0 33 263 687,5
Fiskeldi 11 6 30 25 -16,8
  Aðrar löndunartegundir 120 86 340 367 7,8


Þessar upplýsingar byggja á vigtar- og ráðstöfunarskýrslum sem Fiskistofa safnar frá fiskkaupendum. Fyrir árið 2009 er stuðst við bráðabirgðatölur en endanlegar tölur liggja að baki talna fyrir árið 2008 Athuganir benda til þess að endanlegar tölur séu að hámarki 1-2% hærri en bráðabirgðatölur þegar á heildina er litið en fyrir örfáar fisktegundir getur munurinn þó orðið meiri.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.