FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 29. SEPTEMBER 2009


Aflaverðmæti 54 milljarðar króna
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam tæpum 54 milljörðum króna á fyrri helming ársins 2009, samanborið við rúmlega 45 milljarða yfir sama tímabil 2008. Aflaverðmæti hefur því aukist um 8,4 milljarða eða 18,6 % á milli ára.

Aflaverðmæti botnfisks var í lok júní orðið 40 milljarðar á árinu sem er aukning um 15,1% frá sama tíma í fyrra þegar aflaverðmætið nam tæpum 35 milljörðum. Verðmæti þorskafla var um 19 milljarðar og jókst um 5,5% frá árinu 2008. Aflaverðmæti ýsu nam um 8 milljörðum og stóð nokkurn veginn í stað milli ára. Verðmæti karfaaflans nam rúmum 5 milljörðum, sem er 55% aukning frá fyrstu sex mánuðum ársins 2008, og verðmæti ufsaaflans jókst um 13,6% milli ára í tæpa 3 milljarða króna. Verðmæti annars botnfisksafla jókst í heild um 36,5% miðað við fyrstu sex mánuði ársins 2008.

Verðmæti flatfiskafla nam rúmum 5 milljörðum króna í janúar til júní 2009, sem er 69% aukning frá fyrra ári. Verðmæti uppsjávarafla jókst um 16% milli ára og nam tæpum 8 milljörðum króna á fyrri hluta ársins. Munar þar mestu um verðmæti síldarafla sem nam 2,6 milljörðum samanborið við 1,1 milljarð í fyrra og makríl að verðmæti 2,2 milljarðar samanborið við 1,1 milljarð 2008. Loðnuafli dróst saman um 82% og var aflaverðmætið 341 milljónir króna samanborið við 1,8 milljarða árið áður. 
 
Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam um 21 milljarði króna fyrstu sex mánuði ársins og jókst um 13,3% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 4,7% milli ára og nam tæpum 8 milljörðum króna. Aflaverðmæti sjófrystingar nam tæpum 17 milljörðum, samanborið við 13 milljarða árið áður. Verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam um 6,7 milljörðum, sem er 21,1% aukning miðað við tímabilið janúar til júní 2008.

Verðmæti afla janúar-júní 2009    
Milljónir króna Júní Janúar–júní Breyting frá
    2008 2009 2008 2009 fyrra ári í %
Verðmæti alls 5.374 10.838 45.288 53.710 18,6
Botnfiskur 3.863 6.399 34.759 40.007 15,1
Þorskur 1.471 2.087 17.930 18.911 5,5
Ýsa 908 1.196 7.809 8.032 2,9
Ufsi 221 656 2.434 2.765 13,6
Karfi 342 426 3.277 5.085 55,2
Úthafskarfi 435 1.310 746 1.715 -
Annar botnfiskur 486 723 2.562 3.498 36,5
Flatfisksafli 554 1.331 3.060 5.176 69,2
Uppsjávarafli 730 2.831 6.738 7.818 16,0
Síld 667 1.447 1.118 2.673 139,2
Loðna 0 0 1.846 341 -81,5
Kolmunni 0 0 2.680 2.568 -4,2
Annar uppsjávarafli 63 1.383 1.094 2.236 104,3
Skel- og krabbadýraafli 224 276 722 699 -3,2
Rækja 22 91 170 321 89,1
Annar skel- og krabbad.afli 203 185 552 377 -31,6
Annar afli 3 0 10 10 3,9

Verðmæti afla eftir tegund löndunar janúar-júní 2009  
Milljónir króna Júní Janúar–júní Breyting frá
    2008 2009 2008 2009 fyrra ári í %
Verðmæti alls 5.374 10.838 45.288 53.710 18,6
Til vinnslu innanlands 1.860 3.716 18.395 20.849 13,3
Í gáma til útflutnings 957 1.181 5.571 6.745 21,1
Landað erlendis í bræðslu 0 68 126 199 57,2
Sjófryst 1.486 4.406 12.665 16.778 32,5
Á markað til vinnslu innanlands 873 1.257 7.335 7.680 4,7
Á markað, í gáma til útflutnings 106 97 600 659 10,0
Sjófryst til endurvinnslu innanl. 14 7 115 12 -89,6
Selt úr skipi erlendis 8 0 41 263 538,6
Fiskeldi 15 16 44 41 -8,1
  Aðrar löndunartegundir 56 89 396 484 22,3

Þessar upplýsingar byggja á vigtar- og ráðstöfunarskýrslum sem Fiskistofa safnar frá fiskkaupendum. Fyrir árið 2009 er stuðst við bráðabirgðatölur en endanlegar tölur liggja að baki talna fyrir árið 2008 Athuganir benda til þess að endanlegar tölur séu að hámarki 1-2% hærri en bráðabirgðatölur þegar á heildina er litið en fyrir örfáar fisktegundir getur munurinn þó orðið meiri.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.