FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 29. OKTÓBER 2010

Aflaverðmæti 79 milljarðar króna
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam rúmum 79 milljörðum króna á fyrstu sjö mánuðum ársins 2010 samanborið við tæpa 67 milljarða á sama tímabili 2009. Aflaverðmæti hefur því aukist um 12,5 milljarða eða 18,8% á milli ára.

Aflaverðmæti botnfisks var í lok júlí orðið 56,5 milljarðar og jókst um 20,9% frá sama tíma í fyrra þegar aflaverðmætið nam 46,7 milljörðum. Verðmæti þorskafla var um 27 milljarðar og jókst um 28,7% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 9,5 milljörðum og jókst um 2%. Verðmæti karfaaflans nam 6,8 milljörðum, sem er 21,9% aukning frá árinu 2009. Verðmæti ufsaaflans jókst um 26,6% milli ára og nam rúmum 4,3 milljörðum á fyrstu sjö mánuðum ársins 2010.

Verðmæti flatfiskafla nam rúmum 6,3 milljörðum króna í janúar til júlí 2010, sem er 1,5% samdráttur frá fyrra ári. Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 19,2% milli ára og nam tæpum 14,6 milljörðum.
 
Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 32,7 milljörðum króna og jókst um 25,5% frá árinu 2009. Aflaverðmæti sjófrystingar voru rúmir 27 milljarðar, sem er 26% aukning milli ára. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 41% milli ára og var um 12 milljarðar.

Verðmæti afla janúar-júlí 2010
Milljónir króna Júlí Janúar–júlí Breyting frá
    2009 2010 2009 2010 fyrra ári í %
Verðmæti alls 12.347,9 11.178,6 66.593,1 79.097,7 18,8
Botnfiskur 6.385,0 5.815,7 46.732,4 56.522,8 20,9
Þorskur 1.877,0 2.388,4 20.991,4 27.022,3 28,7
Ýsa 1.217,5 886,8 9.272,0 9.453,1 2,0
Karfi 467,0 553,0 5.579,5 6.802,7 21,9
Ufsi 676,4 896,1 3.412,2 4.319,2 26,6
Annar botnfiskur 2.147,2 1.091,4 7.477,2 8.925,5 19,4
Flatfisksafli 1.329,4 933,2 6.434,0 6.338,9 -1,5
Uppsjávarafli 4.311,4 4.029,4 12.233,8 14.588,6 19,2
Síld 2.133,3 1.109,8 4.774,5 2.480,1 -48,1
Loðna 0,0 0,0 412,3 2.494,4 504,9
Kolmunni 5,1 3,0 2.638,0 3.134,7 18,8
Annar uppsjávarafli 2.173,0 2.916,6 4.409,0 6.479,4 47,0
Skel- og krabbadýraafli 321,6 399,0 1.167,4 1.593,9 36,5
Rækja 133,4 208,9 588,2 997,8 69,7
Annar skel- og krabbad.afli 188,2 190,1 579,3 596,0 2,9
Annar afli 0,4 1,3 25,4 53,6 110,7
 

Verðmæti afla eftir tegund löndunar janúar-júlí 2010
Milljónir króna Júlí Janúar–júlí Breyting frá
    2009 2010 2009 2010 fyrra ári í %
Verðmæti alls 12.347,9 11.178,6 66.593,1 79.097,7 18,8
Til vinnslu innanlands 4.730,3 4.138,1 26.084,2 32.650,4 25,2
Í gáma til útflutnings 1.470,0 632,3 8.301,3 5.828,7 -29,8
Landað erlendis í bræðslu 0,0 0,0 263,4 83,6 -68,3
Sjófryst 5.100,0 5.226,9 21.692,7 27.332,0 26,0
Á markað til vinnslu innanlands 899,4 1.080,5 8.595,3 12.118,4 41,0
Á markað, í gáma til útflutnings* 55,0 1,7 719,1 70,4 -90,2
Sjófryst til endurvinnslu innanl. 0,5 4,2 20,5 124,1 504,6
Selt úr skipi erlendis 0,0 0,0 263,3 0,0
Fiskeldi 22,4 8,8 91,5 66,6 -27,2
Aðrar löndunartegundir 70,4 86,2 561,8 823,6 46,6
*Fyrir árið 2010 er ekki hægt að birta sundurliðaðar tölur um afla  sem seldur er í gegnum uppboðsmarkað innanlands og fer síðan í gám til útflutnings (og er unninn í útlöndum).

Verðmæti afla eftir staðsetningu verkunarstaðar janúar-júlí 2010
Milljónir króna Júlí Janúar–júlí Breyting frá
    2009 2010 2009 2010 fyrra ári í %
Verðmæti alls 12.347,9 11.178,6 66.593,1 79.097,7 18,8
Höfuðborgarsvæði 2.112,3 2.014,7 11.612,8 14.917,4 28,5
Suðurnes 1.236,5 1.382,0 11.107,5 13.569,4 22,2
Vesturland 104,6 84,3 3.138,7 3.748,0 19,4
Vestfirðir 528,1 499,0 3.387,8 4.217,2 24,5
Norðurland vestra 908,6 737,2 4.212,8 5.628,6 33,6
Norðurland eystra 1.874,3 1.907,5 9.610,9 11.605,9 20,8
Austurland 2.670,8 2.274,6 9.042,4 10.649,6 17,8
Suðurland 1.305,1 1.652,9 5.968,0 8.895,2 49,0
Útlönd 1.607,5 626,4 8.512,2 5.866,4 -31,1

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.