FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 16. MAÍ 2008


Aflaverðmæti 11,7 milljarðar króna
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 11,7 milljörðum króna á fyrstu tveimur mánuðum ársins 2008 samanborið við 15,6 milljarða á sama tímabili 2007. Aflaverðmæti hefur dregist saman um 3,9 milljarða eða 25,1% milli ára. Aflaverðmæti febrúarmánaðar nam 6,9 milljörðum en í febrúar í fyrra var verðmæti afla 9,8 milljarðar.

Aflaverðmæti botnfisks var í lok febrúar orðið 9,5 milljarðar miðað við 10,7 milljarð á sama tíma árið 2007 og er því um 11,3% samdrátt að ræða. Verðmæti þorskafla var 4,9 milljarðar og dróst saman um 20,8%. Aflaverðmæti ýsu nam 2,5 milljörðum, sem er 14,2% aukning, og ufsaaflinn jókst að verðmæti um 48,6%, var 694 milljónir.

Verðmæti flatfiskafla nam 514 milljónum og dróst saman um 27,2%. Aflaverðmæti uppsjávarafla dróst saman um 60% og nam 1,7 milljörðum. Munar þar mestu um verðmæti loðnu sem nam rúmum 900 milljónum fyrstu tvo mánuði ársins samanborið við rúma 3,5 milljarða á sama tíma árið 2007. 

Verðmæti afla, sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands, var 4,3 milljarðar króna, sem er samdráttur um 3,0 milljarða eða 40,9%. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands dróst saman um 15,6%, var 2,3 milljarðar. Aflaverðmæti sjófrystingar var 3,2 milljarðar og dróst saman um 16,6% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 1,5 milljörðum sem er 11,4% aukning.

Verðmæti afla janúar - febrúar 2008    
Milljónir kr.        
    Febrúar Janúar–febrúar Breyting frá
    2007 2008 2007 2008 fyrra ári í %
             
Verðmæti alls 9.751,7 6.872,7 15.575,8 11.659,3 -25,1
             
Botnfiskur 6.054,3 5.707,3 10.656,1 9.455,6 -11,3
  Þorskur 3.750,2 3.076,9 6.217,3 4.924,5 -20,8
  Ýsa 1.239,1 1.437,3 2.217,2 2.532,4 14,2
  Ufsi 241,3 445,8 466,7 693,5 48,6
  Karfi 477,3 435,6 1.037,8 707,9 -31,8
  Úthafskarfi 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0
  Annar botnfiskur 346,4 311,7 717,1 597,4 -16,7
Flatfiskur 460,7 293,0 706,1 513,8 -27,2
Uppsjávarafli 3.235,4 871,8 4.208,9 1.688,5 -59,9
  Síld 0,0 0,0 79,9 385,9 382,8
  Loðna 2.647,4 594,6 3.528,9 915,1 -74,1
  Kolmunni 46,2 228,2 58,3 338,4 0,0
  Annar uppsjávarafli 541,8 49,0 541,8 49,0 0,0
Skel- og krabbadýraafli 1,1 0,1 3,9 0,4 -88,9
  Rækja 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0
  Annar skel- og krabbad.afli 1,1 0,1 3,9 0,4 -88,9
Annar afli 0,3 0,5 0,8 1,1 39,1
Verðmæti afla eftir tegund löndunar janúar - febrúar 2008  
Milljónir kr.        
    Febrúar Janúar–febrúar Breyting frá
    2007 2008 2007 2008 fyrra ári í %
             
Verðmæti alls 9.751,7 6.872,7 15.575,8 11.659,3 -25,1
             
  Til vinnslu innanlands 4.957,4 2.534,0 7.296,1 4.313,2 -40,9
  Í gáma til útflutnings 679,7 770,6 1.374,3 1.531,0 11,4
  Landað erlendis í bræðslu 0,0 35,0 0,0 67,7 0,0
  Sjófryst 2.442,6 2.107,7 3.802,1 3.170,4 -16,6
  Á markað til vinnslu innanlands 1.520,4 1.297,9 2.774,4 2.341,7 -15,6
  Á markað, í gáma til útflutnings 102,6 77,6 200,9 167,2 -16,8
  Sjófryst til endurvinnslu innanl. 3,7 0,0 9,1 0,2 -
  Selt úr skipi erlendis 14,4 19,0 72,5 19,0 -73,8
  Fiskeldi 0,9 0,2 2,2 0,2 -91,9
  Aðrar löndunartegundir 30,0 30,8 44,2 48,8 10,5
Verðmæti afla eftir staðsetningu verkunarstaðar janúar - febrúar 2008
Milljónir kr.        
    Febrúar Janúar–febrúar Breyting frá
    2007 2008 2007 2008 fyrra ári í %
             
Verðmæti alls 9.751,7 6.872,7 15.575,8 11.659,3 -25,1
             
  Höfuðborgarsvæði 1.424,6 1.284,2 2.442,1 2.029,8 -16,9
  Suðurnes 1.865,1 1.385,5 3.057,7 2.322,6 -24,0
  Vesturland 811,3 608,6 1.163,4 966,8 -16,9
  Vestfirðir 495,7 301,5 935,4 541,2 -42,1
  Norðurland vestra 624,5 509,8 933,4 671,7 -28,0
  Norðurland eystra 1.234,7 854,0 1.906,7 1.534,2 -19,5
  Austurland 1.356,7 629,0 2.071,8 1.209,1 -41,6
  Suðurland 1.250,4 485,9 1.643,8 790,9 -51,9
  Útlönd 688,6 814,1 1.421,4 1.593,2 12,1

 

Þessar upplýsingar byggja á vigtar- og ráðstöfunarskýrslum sem Fiskistofa safnar frá fiskkaupendum. Fyrir árið 2008 er stuðst við bráðabirgðatölur en endanlegar tölur liggja að baki talna fyrir árið 2007.  Athuganir benda til þess að endanlegar tölur séu að hámarki 1-2% hærri en bráðabirgðatölur þegar á heildina er litið en fyrir örfáar fisktegundir getur munurinn þó orðið meiri.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.