FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 21. MAÍ 2007


Aflaverðmæti 15 milljarðar króna

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 15,2 milljörðum króna á fyrstu tveimur mánuðum ársins 2007 samanborið við 11,3 milljarða á sama tímabili 2006. Aflaverðmæti hefur aukist um 3,9 milljarða eða 34,7% milli ára. Aflaverðmæti febrúarmánaðar nam 9,5 milljörðum en í febrúar í fyrra var verðmæti afla 7,7 milljarðar.

Aflaverðmæti botnfisks var í lok febrúar orðið 10,5 milljarðar miðað við 8,1 milljarð á sama tíma árið 2006 og er því um 29,4% aukningu að ræða. Verðmæti þorskafla var 6,2 milljarðar og jókst um 22%. Aflaverðmæti ýsu nam 2,2 milljörðum, sem er 54,9% aukning, og ufsaaflinn jókst að verðmæti um 23,3%, var 465 milljónir.

Verðmæti flatfiskafla dróst saman um 15,2%, nam 678 milljónum. Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 74,1% og nam 4 milljörðum. Munar þar mestu um verðmæti loðnu sem nam 3,4 milljörðum samanborið við 2 milljarða í fyrra.

Verðmæti afla, sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands, var 7,2 milljarðar króna, sem er aukning um 2,4 milljarða eða 48,6%. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 46,9%, var 2,8 milljarðar. Aflaverðmæti sjófrystingar var 3,5 milljarðar og jókst um 2,5% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 1,4 milljörðum sem er 66,2% aukning.

Verðmæti afla janúar–febrúar 2007    
Milljónir kr.       Breytingar frá
    Febrúar Janúar–febrúar fyrra ári í %
    2006 2007 2006 2007 Jan.– febrúar
             
Verðmæti alls 7.726,4 9.487,1 11.295,9 15.220,4 34,7
             
Botnfiskur 5.117,9 5.934,1 8.138,9 10.530,8 29,4
 

Þorskur

3.221,7 3.687,1 5.041,5 6.152,7 22,0
 

Ýsa

794,5 1.207,6 1.410,6 2.185,3 54,9
 

Ufsi

244,0 239,7 376,8 464,6 23,3
 

Karfi

586,5 463,5 822,1 1.021,7 24,3
 

Úthafskarfi

0,0 0,0 0,0 0,0 0,0
 

Annar botnfiskur

271,2 336,2 487,8 706,5 44,8
Flatfiskur 469,8 432,1 798,6 677,6 -15,2
Uppsjávarafli 2.087,1 3.120,6 2.303,8 4.011,3 74,1
 

Síld

1,3 0,0 6,7 79,9 1.092,2
 

Loðna

1.743,2 2.578,8 1.954,6 3.377,4 72,8
 

Kolmunni

19,9 0,0 19,9 12,2 -39,1
 

Annar uppsjávarafli

322,6 541,8 322,6 541,8 68,0
Skel- og krabbadýraafli 50,5 0,0 52,5 0,0 -100,0
 

Rækja

48,7 0,0 48,7 0,0 -100,0
 

Annar skel- og krabbad.afli

1,8 0,0 3,9 0,0 -99,9
Annar afli 1,2 0,3 2,2 0,7 -65,9
Verðmæti afla eftir tegund löndunar janúar–febrúar 2007  
Milljónir kr.       Breytingar frá
    Febrúar Janúar–febrúar fyrra ári í %
    2006 2007 2006 2007 Jan.– febrúar
             
Verðmæti alls 7.726,4 9.487,1 11.295,9 15.220,4 34,7
             
 

Til vinnslu innanlands

3.399,7 4.891,2 4.862,4 7.226,0 48,6
 

Í gáma til útflutnings

500,9 676,1 823,5 1.369,0 66,2
 

Landað erlendis í bræðslu

0,0 0,0 0,0 0,0 0,0
 

Sjófryst

2.671,2 2.252,8 3.448,7 3.534,8 2,5
 

Á markað til vinnslu innanlands

1.042,6 1.520,1 1.889,1 2.774,2 46,9
 

Á markað, í gáma til útflutnings

89,0 102,6 210,1 199,8 -4,9
 

Sjófryst til endurvinnslu innanl.

0,0 0,0 0,0 0,0 0,0
 

Selt úr skipi erlendis

0,0 14,4 25,6 72,5 183,4
 

Fiskeldi

5,8 0,0 9,1 0,0 -100,0
 

Aðrar löndunartegundir

17,2 30,0 27,5 44,1 60,4
Verðmæti afla eftir staðsetningu verkunarstaðar janúar–febrúar 2007
Milljónir kr.       Breytingar frá
    Febrúar Janúar–febrúar fyrra ári í %
    2006 2007 2006 2007 Jan.– febrúar
             
Verðmæti alls 7.726,4 9.487,1 11.295,9 15.220,4 34,7
             
  Höfuðborgarsvæði 1.363,0 1.312,7 2.020,2 2.246,0 11,2
  Suðurnes 1.352,5 1.965,8 2.095,2 3.287,0 56,9
  Vesturland 422,5 808,8 671,5 1.158,9 72,6
  Vestfirðir 334,5 348,3 701,1 774,2 10,4
  Norðurland vestra 538,7 624,5 751,8 933,4 24,2
  Norðurland eystra 1.237,2 1.188,1 1.643,7 1.818,6 10,6
  Austurland 962,0 1.304,3 1.182,4 1.944,4 64,4
  Suðurland 1.045,6 1.247,5 1.426,4 1.639,6 14,9
  Útlönd 470,3 687,2 803,6 1.418,3 76,5

Þessar upplýsingar byggja á vigtar- og ráðstöfunarskýrslum sem Fiskistofa safnar frá fiskkaupendum. Fyrir árið 2007 er stuðst við bráðabirgðatölur en endanlegar tölur liggja að baki talna fyrir árið 2006. Athuganir benda til þess að endanlegar tölur séu að hámarki 1-2% hærri en bráðabirgðatölur þegar á heildina er litið en fyrir örfáar fisktegundir getur munurinn þó orðið meiri.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.