FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 23. MAÍ 2005


Aflaverðmætið 12,6 milljarðar króna 

Á fyrstu tveimur mánuðum ársins 2005 nam aflaverðmæti íslenskra skipa af öllum miðum 12,6 milljörðum króna samanborið við 11 milljarða á sama tímabili 2004. Aflaverðmætið hefur því aukist um 14% á milli ára eða um nærri 1,6 milljarð króna. Verðmæti botnfiskaflans var tæplega 8,1 milljarður króna og jókst um 561 milljón króna eða um 7,5%. Verðmæti þorsks var nær 5,1 milljarður króna og var nánast óbreytt frá fyrra ári, verðmæti ýsuaflans nam rúmum 1,4 milljörðum króna og jókst um fjórðung og verðmæti ufsaaflans nam 387 milljónum og jókst um 39% frá fyrra ári. Verðmæti loðnuaflans nam rúmlega 3,9 milljörðum króna og jókst um rúman helming. Þá var verðmæti skel- og krabbadýraafla 12 milljónir króna en var tæpar 177 milljónir króna á sama tímabili 2004. 

Verðmæti afla í beinni sölu útgerða til vinnslustöðva var á tímabilinu 6,4 milljarðar króna samanborið við 5,4 milljarða á árinu 2004 og er það aukning um fimmtung. Verðmæti sjófrysts afla var tæpir 3 milljarðar króna en nam rúmum 2,6 milljörðum króna á fyrstu tveimur mánuðum ársins 2004 og er þetta aukning um 12% á milli ára. Verðmæti afla sem seldur var á fiskmörkuðum til fiskvinnslu innanlands jókst um 5%, var 1,9 milljarðar króna samanborið við 1,8 milljarða króna á sama tímabili 2004. Í gámum var fluttur út ferskur fiskur fyrir 1 milljarð króna sem er 12% aukning frá fyrra ári en þá var verðmætið 927 milljónir. Afli sem seldur var á markaði innanlands en fluttur út í gámum jókst um þriðjung, var 194 milljónir 2005 miðað við 141 milljón 2004.

Á Suðurnesjum var unnið úr afla að verðmæti 2,4 milljarðar króna sem er 10% aukning frá árinu 2004. Unnið var úr afla á Austurlandi að verðmæti 2,2 milljarðar króna sem er aukning um 30% frá fyrra ári. Mestur samdráttur milli ára varð Vesturlandi en þar var unnið úr afla að verðmæti 566 milljónir króna miðað við 851 milljón á sama tíma í fyrra. Mesta aukningin hefur orðið á Suðurlandi en þar var unnið úr afla að verðmæti 1,4 milljarðar sem er 78% aukning frá 2004. 

Upplýsingar um afla og aflaverðmæti¹ janúar-febrúar 2005 er að finna í talnaefni á vef Hagstofu Íslands.

Þessar upplýsingar byggja á vigtar- og ráðstöfunarskýrslum sem Fiskistofa safnar frá fiskkaupendum. Fyrir árið 2004 er stuðst við bráðabirgðatölur en endanlegar tölur liggja að baki talna fyrir árið 2003. Athuganir benda til þess að endanlegar tölur séu að hámarki 1-2% hærri en bráðabirgðatölur þegar á heildina er litið en fyrir örfáar fisktegundir getur munurinn þó orðið meiri.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.