FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 17. MARS 2010


Aflaverðmæti 115 milljarðar króna
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam rúmum 115 milljörðum króna á árinu 2009, samanborið við 99 milljarða yfir árið 2008. Aflaverðmæti hefur því aukist um tæpa 16 milljarða eða 16% á milli ára. Aflaverðmæti í desember nam 8,5 milljörðum króna en var 8 milljarðar í desember 2008.

Aflaverðmæti botnfisks var 82 milljarðar króna á árinu 2009 sem er aukning um 16,9% frá fyrra ári þegar aflaverðmætið nam rúmum 70 milljörðum. Verðmæti þorskafla var 36,7 milljarðar og jókst um 13,7% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam rúmum 15 milljörðum, sem er 1,2% aukning milli ára. Verðmæti karfaaflans nam 10 milljörðum, sem er 8,6% aukning frá árinu 2008. Verðmæti ufsaaflans nam 7,8 milljörðum og jókst um 20,3% milli ára. Verðmæti annars botnfisksafla jókst í heild um 40% frá fyrra ári.

Verðmæti flatfiskafla nam 9,8 milljörðum króna á árinu 2009, sem er 47,2% aukning frá fyrra ári. Verðmæti uppsjávarafla stóð nánast í stað milli ára og nam 21,4 milljörðum króna á árinu 2009.

Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 42,7 milljörðum króna á árinu 2009 og jókst um 16% frá fyrra ári. Aflaverðmæti sjófrystingar jókst um 22,5% milli ára og nam 41,4 milljörðum króna. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands nam 15,1 milljarði, samanborið við 13 milljarða árið áður. Verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam um 13,2 milljörðum, sem er 9,1% aukning frá árinu 2008.

Verðmæti afla janúar-desember 2009    
Milljónir króna Desember Janúar–desember Breyting frá
    2008 2009 2008 2009 fyrra ári í %
Verðmæti alls 8.005 8.508 99.153 115.026 16,0
Botnfiskur 5.782 7.021 70.058 81.893 16,9
Þorskur 2.704 3.351 32.236 36.660 13,7
Ýsa 911 877 15.124 15.306 1,2
Ufsi 782 1.071 6.482 7.799 20,3
Karfi 898 896 9.216 10.006 8,6
Úthafskarfi 0 0 921 3.614 -
Annar botnfiskur 487 826 6.079 8.508 40,0
Flatfisksafli 909 641 6.660 9.806 47,2
Uppsjávarafli 1.308 818 21.272 21.417 0,7
Síld 1.307 652 12.121 12.769 5,3
Loðna 0 0 1.846 341 -81,5
Kolmunni 0 8 2.718 2.707 -0,4
Annar uppsjávarafli 1 158 4.588 5.600 22,1
Skel- og krabbadýraafli 4 29 1.112 1.878 68,9
Rækja 3 24 303 926 205,4
Annar skel- og krabbad.afli 2 5 809 953 17,8
Annar afli 2 0 50 31 -37,3

Verðmæti afla eftir tegund löndunar janúar-desember 2009  
Milljónir króna Desember Janúar–desember Breyting frá
    2008 2009 2008 2009 fyrra ári í %
Verðmæti alls 8.005 8.508 99.153 115.026 16,0
Til vinnslu innanlands 2.940 2.788 36.834 42.720 16,0
Í gáma til útflutnings 897 735 12.080 13.174 9,1
Landað erlendis í bræðslu 0 0 705 392 -44,4
Sjófryst 3.087 3.789 33.786 41.396 22,5
Á markað til vinnslu innanlands 918 1.128 12.998 15.166 16,7
Á markað, í gáma til útflutnings 120 0 1.752 1.016 -42,0
Sjófryst til endurvinnslu innanl. 23 5 251 43 -82,9
Selt úr skipi erlendis 1 28 42 291 591,7
Fiskeldi 1 3 78 70 -10,4
  Aðrar löndunartegundir 19 32 626 756 20,8


Þessar upplýsingar byggja á vigtar- og ráðstöfunarskýrslum sem Fiskistofa safnar frá fiskkaupendum. Fyrir árið 2009 er stuðst við bráðabirgðatölur en endanlegar tölur liggja að baki talna fyrir árið 2008 Athuganir benda til þess að endanlegar tölur séu að hámarki 1-2% hærri en bráðabirgðatölur þegar á heildina er litið en fyrir örfáar fisktegundir getur munurinn þó orðið meiri.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.