FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 16. MARS 2007


Aflaverðmæti 76 milljarðar króna
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 76,1 milljarði króna á árinu 2006 samanborið við 67,9 milljarða á árinu 2005. Aflaverðmæti hefur aukist um 8,2 milljarða eða 12,1% milli ára. Aflaverðmæti desembermánaðar nam 5,6 milljörðum en í desember  í fyrra var verðmæti afla 4,8 milljarðar.

Aflaverðmæti botnfisks var 57,5 milljarðar en var 47,2 milljarðar á árinu 2005 og er aukningin því 21,8%. Verðmæti þorskafla var 27,6 milljarðar og jókst um 10,6%. Aflaverðmæti ýsu nam 11,4 milljörðum, sem er 28,5% aukning, og ufsaaflinn jókst að verðmæti um 51,8%, var 4,7 milljarðar.

Verðmæti flatfiskafla jókst um 3% milli ára, nam 5,2 milljörðum. Aflaverðmæti uppsjávarafla dróst saman um 11,1% milli ára og nam 12,6 milljörðum. Munar þar mestu um verðmæti loðnu sem minnkaði um 56,7% eða 2,9 milljarða og verðmæti síldar sem dróst saman um 800 milljónir eða 11,2%. Verðmæti kolmunna jókst og  nam 3,6 milljörðum samanborið við tæpa 1,5 milljarða í fyrra.

Verðmæti rækju var 287 millj. kr. samanborið við 870 millj. kr. í fyrra, sem er samdráttur um 67,1%.

Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu, var 28,3 milljarðar króna sem er aukning um 2,7 milljarða eða 10,4%. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 31,6%, var 12 milljarðar. Aflaverðmæti sjófrystingar var 25,9 milljarðar og jókst um 3,7% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 7,9 milljörðum sem er 20,1% aukning.

Verðmæti afla janúar–desember 2006    
Milljónir kr.       Breytingar frá
    Desember Janúar–desember fyrra ári í %
    2005 2006 2005 2006 Jan.– desember
             
Verðmæti alls 4.764,9 5.640,5 67.920,1 76.135,6 12,1
             
Botnfiskur 3.695,6 4.573,2 47.209,3 57.487,0 21,8
  Þorskur 2.159,9 2.727,4 24.924,0 27.571,6 10,6
  Ýsa 632,4 856,7 8.881,4 11.410,4 28,5
  Ufsi 365,3 365,2 3.086,1 4.683,9 51,8
  Karfi 336,3 306,6 5.466,3 6.537,1 19,6
  Úthafskarfi 0,0 0,0 1.666,0 3.129,9 87,9
  Annar botnfiskur 201,6 317,2 3.185,3 4.154,3 30,4
Flatfiskur 382,3 393,2 5.076,5 5.229,8 3,0
Uppsjávarafli 623,0 672,3 14.127,9 12.561,3 -11,1
  Síld 288,4 662,9 7.149,2 6.345,2 -11,2
  Loðna 279,0 0,5 5.030,6 2.180,5 -56,7
  Kolmunni 55,6 8,9 1.489,5 3.584,7 140,7
  Annar uppsjávarafli 0,0 0,0 458,6 450,9 -1,7
Skel- og krabbadýraafli 63,2 1,7 1.497,1 854,5 -42,9
  Rækja 59,1 0,0 870,4 286,7 -67,1
  Annar skel- og krabbad.afli 4,1 1,7 626,6 567,9 -9,4
Annar afli 0,8 0,0 9,3 2,9 -68,6
Verðmæti afla eftir tegund löndunar janúar–desember 2006  
Milljónir kr.       Breytingar frá
    Desember Janúar–desember fyrra ári í %
    2005 2006 2005 2006 Jan.–desember
             
Verðmæti alls 4.764,9 5.640,5 67.920,1 76.135,6 12,1
             
  Til vinnslu innanlands 1.379,6 1.768,9 25.662,4 28.328,5 10,4
  Í gáma til útflutnings 339,3 472,8 6.611,8 7.938,3 20,1
  Landað erlendis í bræðslu 8,0 2,2 75,2 169,3 125,1
  Sjófryst 2.347,0 2.366,1 24.930,5 25.865,2 3,7
  Á markað til vinnslu innanlands 611,3 928,3 9.126,1 12.010,5 31,6
  Á markað, í gáma til útflutnings 68,6 70,5 1.225,2 1.457,6 19,0
  Sjófryst til endurvinnslu innanl. 0,0 0,0 0,0 0,0 -
  Selt úr skipi erlendis 0,0 24,3 69,7 121,4 74,1
  Fiskeldi 3,0 0,6 33,4 32,5 -2,7
  Aðrar löndunartegundir 8,2 6,9 185,6 212,3 14,4
Verðmæti afla eftir staðsetningu verkunarstaðar janúar–desember 2006
Milljónir kr.       Breytingar frá
    Desember Janúar–desember fyrra ári í %
    2005 2006 2005 2006 Jan.–desember
             
Verðmæti alls 4.764,9 5.640,5 67.920,1 76.135,6 12,1
             
  Höfuðborgarsvæði 1.153,3 1.271,6 12.776,6 15.693,5 22,8
  Suðurnes 850,2 1.144,1 11.656,9 13.253,3 13,7
  Vesturland 157,9 208,2 2.459,7 2.959,4 20,3
  Vestfirðir 312,1 354,9 3.818,6 4.263,9 11,7
  Norðurland vestra 468,0 497,8 5.059,5 5.662,6 11,9
  Norðurland eystra 782,8 650,5 11.637,4 9.486,1 -18,5
  Austurland 277,1 564,0 6.750,2 9.593,1 42,1
  Suðurland 432,3 460,8 7.308,3 7.327,7 0,3
  Útlönd 331,4 488,7 6.452,9 7.895,8 22,4

Þessar upplýsingar byggja á vigtar- og ráðstöfunarskýrslum sem Fiskistofa safnar frá fiskkaupendum. Fyrir árið 2006 er stuðst við bráðabirgðatölur en endanlegar tölur liggja að baki talna fyrir árið 2005. Athuganir benda til þess að endanlegar tölur séu að hámarki 1-2% hærri en bráðabirgðatölur þegar á heildina er litið en fyrir örfáar fisktegundir getur munurinn þó orðið meiri.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.