FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 30. MARS 2004

Aflaverðmætið 67,1 milljarður króna 
Á árinu 2003¹ nam aflaverðmæti íslenskra skipa af öllum miðum 67,1 milljarði króna en aflaverðmæti ársins 2002 var  77,1 milljarður króna og er þetta samdráttur um 9,9 milljarða króna eða 12,9%. Verðmæti botnfiskaflans á árinu 2003 var 45,2 milljarðar króna samanborið við 50,8 milljarða króna á árinu 2002. Verðmæti þorsks var 26 milljarðar en var 28,7 milljarðar á árinu 2002. Verðmæti ýsuafla var 5,8 milljarðar og dróst saman um 1,3 milljarða króna. Verðmæti karfaafla var 4,7 milljarðar króna og dróst saman um 1,2 milljarða króna. 
       Verðmæti uppsjávarafla var 12,2 milljarðar króna á árinu 2003 en á árinu 2002 nam verðmætið 15,4 milljörðum króna. Verðmæti loðnuafla minnkaði um 3,7 milljarða króna, verðmæti síldarafla minnkaði um 651 milljón króna en verðmæti kolmunnaaflans jókst um 1,1 milljarð króna. Aflaverðmæti skel- og krabbadýra var 3,7 milljarðar króna á árinu 2003 en var 4,9 milljarðar króna á árinu 2002 og nemur samdrátturinn tæplega 1,2 milljörðum króna.
       Verðmæti afla í beinni sölu útgerða til vinnslustöðva á árinu 2003 var 30,4 milljarðar samanborið við 34,7 milljarða á árinu 2002 og er það 12,4% samdráttur. Verðmæti sjófrysts afla var 20,5 milljarðar króna en nam 24,2 milljörðum króna á árinu 2002 sem er samdráttur um 15,2%. Verðmæti afla sem seldur var á innlendum fiskmörkuðum til fiskvinnslu innanlands dróst saman um 19,6%, var 9,4 milljarðar króna á árinu 2003 samanborið við 11,7 milljarða króna á sama tímabili árið 2002. Í gámum var fluttur út ferskur fiskur fyrir 4,1 milljarð króna á árinu 2003 samanborið við verðmæti upp á 3,6 milljarða króna á árinu 2002 og nemur aukningin 14,4%. Aflaverðmæti fiskjar sem landað var erlendis til bræðslu var 542 milljónir króna á árinu 2003 sem er aukning í verðmætum um fjórðung, sambærileg upphæð fyrir árið 2002 var 432 milljónir króna.
       Á Suðurnesjum var unnið úr afla að verðmæti 10,8 milljarða króna, fyrir 10,5 milljarða króna á Norðurlandi eystra og fyrir 10,2 milljarða króna á höfuðborgarsvæðinu. Á Austurlandi var unnið úr fiski að verðmæti 8,9 milljarða króna. Samdráttur varð hlutfallslega mestur á Vestfjörðum eða 20,5% en í verðmætum talið varð samdrátturinn á milli ára mestur á höfuðborgarsvæðinu eða 2,1 milljarður króna.

    

¹ Þessar upplýsingar byggja á vigtar- og ráðstöfunarskýrslum sem Fiskistofa safnar frá fiskkaupendum. Fyrir árið 2003 er stuðst við bráðabirgðatölur en endanlegar tölur liggja að baki talna fyrir árið 2002. Athuganir benda til þess að endanlegar tölur séu að hámarki 1-2% hærri en bráðabirgðatölur þegar á heildina er litið en fyrir örfáar fisktegundir getur munurinn þó orðið meiri.


Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.