FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 22. JÚLÍ 2009


Aflaverðmæti 34 milljarðar króna
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam tæpum 34 milljörðum króna fyrstu fjóra mánuði ársins 2009, samanborið við 32 milljarða á sama tímabili 2008. Aflaverðmæti hefur því aukist um 2 milljarða eða 6,5% á milli ára.

Aflaverðmæti botnfisks var í lok apríl orðið 27 milljarðar á árinu sem er aukning um 8,2% frá sama tíma í fyrra þegar aflaverðmætið nam tæpum 25 milljörðum. Verðmæti þorskafla var um 14 milljarðar og jókst um 4,8% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam rúmum 5 milljörðum og dróst saman um 8,8% milli ára. Verðmæti karfaaflans nam rúmum 4 milljörðum, sem er 61% aukning frá fyrstu fjórum mánuðum ársins 2008, og verðmæti ufsaaflans dróst saman um 13% milli ára í tæpan 1,5 milljarð króna.

Verðmæti flatfiskafla nam tæpum 2,4 milljörðum króna í janúar til apríl 2009, sem er 65,7% aukning frá fyrra ári. Aflaverðmæti uppsjávarafla dróst hins vegar saman um 16,5% milli ára og nam 4,3 milljörðum.
 
Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 14,2 milljörðum króna fyrstu fjóra mánuði ársins og jókst um 7,2% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands dróst saman um 4,1% milli ára og var um 5 milljarðar króna. Aflaverðmæti sjófrystingar var 9 milljarðar, samanborið við 8,8 milljarða árið áður. Verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam tæpum 4,4 milljörðum, sem er 23,1% aukning miðað við tímabilið janúar til apríl 2008.

Verðmæti afla janúar-apríl 2009    
Milljónir króna Apríl Janúar–apríl Breyting frá
    2008 2009 2008 2009 fyrra ári í %
Verðmæti alls 8.860 7.569 31.643 33.715 6,5
Botnfiskur 6.905 5.754 24.860 26.903 8,2
Þorskur 3.438 2.494 13.296 13.940 4,8
Ýsa 1.612 1.279 5.797 5.285 -8,8
Ufsi 443 379 1.672 1.454 -13,0
Karfi 929 1.100 2.569 4.135 61,0
Úthafskarfi 0 0 0 0 -
Annar botnfiskur 482 501 1.526 2.089 36,9
Flatfisksafli 525 647 1.420 2.354 65,7
Uppsjávarafli 1.267 1.079 5.158 4.306 -16,5
Síld 0 3 386 893 131,4
Loðna 0 0 1.846 341 -81,5
Kolmunni 1.267 1.076 1.895 2.220 17,1
Annar uppsjávarafli 0 0 1.031 852 -17,3
Skel- og krabbadýraafli 159 88 200 142 -28,9
Rækja 53 40 74 94 27,6
Annar skel- og krabbad.afli 106 48 126 48 -62,1
Annar afli 3 0 5 9 103,6

Verðmæti afla eftir tegund löndunar janúar-apríl 2009  
Milljónir króna Apríl Janúar–apríl Breyting frá
    2008 2009 2008 2009 fyrra ári í %
Verðmæti alls 8.860 7.569 31.643 33.715 6,5
Til vinnslu innanlands 3.690 2.608 13.253 14.205 7,2
Í gáma til útflutnings 947 1.176 3.561 4.384 23,1
Landað erlendis í bræðslu 37 47 104 131 25,2
Sjófryst 2.560 2.579 8.787 9.017 2,6
Á markað til vinnslu innanlands 1.422 920 5.212 4.999 -4,1
Á markað, í gáma til útflutnings 95 106 373 419 12,3
Sjófryst til endurvinnslu innanl. 14 1 80 5 -93,7
Selt úr skipi erlendis 0 63 33 263 687,5
Fiskeldi 10 2 18 19 1,0
  Aðrar löndunartegundir 86 66 220 273 23,9

Þessar upplýsingar byggja á vigtar- og ráðstöfunarskýrslum sem Fiskistofa safnar frá fiskkaupendum. Fyrir árið 2009 er stuðst við bráðabirgðatölur en endanlegar tölur liggja að baki talna fyrir árið 2008 Athuganir benda til þess að endanlegar tölur séu að hámarki 1-2% hærri en bráðabirgðatölur þegar á heildina er litið en fyrir örfáar fisktegundir getur munurinn þó orðið meiri.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.