FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 03. ÁGÚST 2004

Aflaverðmætið 24,8 milljarðar króna 

Á fyrstu fjórum mánuðum ársins 2004 var aflaverðmæti íslenskra skipa af öllum miðum nærri 24,8 milljarðar króna samanborið við 25,1 milljarð á sama tímabili 2003. Aflaverðmæti hefur því dregist saman um 1,3% á milli ára eða um nærri 330 milljónir króna, á verðlagi hvors árs. Verðmæti botnfiskaflans var 18 milljarðar króna og jókst um tæpar 390 milljónir króna (2,2%). Verðmæti þorsks var 12 milljarðar króna og jókst um tæpan milljarð króna (9%). Verðmæti ýsuaflans nam 2,7 milljörðum króna og jókst verðmæti hans um 540 milljónir króna (24,8%). Verðmæti karfa var 1,7 milljarðar króna og dróst því saman um rúmar 550 milljónir króna (-24,6%). Verðmæti loðnuaflans nam 3,6 milljörðum króna og dróst saman um rúmar 600 milljónir króna (-14,3%). Þá var verðmæti skel- og krabbadýraafla 647 milljónir króna en var rúmur milljarður króna á sama tímabili 2003.
       Verðmæti afla í beinni sölu útgerða til vinnslustöðva var á tímabilinu 12,2 milljarðar króna samanborið við tæplega 13 milljarða á árinu 2003 og er það samdráttur um 5,8%. Verðmæti sjófrysts afla var 5,9 milljarðar króna og er það sama verðmæti og 2003. Verðmæti afla sem seldur var á fiskmörkuðum til fiskvinnslu innanlands dróst saman um 5,1%, var 3,9 milljarðar króna samanborið við 4,1 milljarð króna á sama tímabili 2003. Í gámum var fluttur út ferskur fiskur fyrir 2,3 milljarða króna sem er aukning frá fyrra ári um 868 milljónir króna (60,7%). 
       Á Suðurnesjum var unnið úr afla að verðmæti 5,1 milljarður króna og er það aukning um 142 milljónir króna á milli ára eða 2,9%. Mestur samdráttur milli ára varð á Austurlandi, 444 milljónir króna eða sem nemur 12,5%. Verðmæti afla íslenskra skipa sem unninn var erlendis jókst um 42,5%, úr 1,5 milljörðum króna á fyrstu fjórum mánuðum ársins 2003 í nærri 2,2 milljarða króna á sama tímabili 2004.
       Upplýsingar um afla og aflaverðmæti janúar-apríl 2004 er að finna í talnaefni.

¹ Þessar upplýsingar byggja á vigtar- og ráðstöfunarskýrslum sem Fiskistofa safnar frá fiskkaupendum. Fyrir árið 2004 er stuðst við bráðabirgðatölur en endanlegar tölur liggja að baki talna fyrir árið 2003. Athuganir benda til þess að endanlegar tölur séu að hámarki 1-2% hærri en bráðabirgðatölur þegar á heildina er litið en fyrir örfáar fisktegundir getur munurinn þó orðið meiri.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.