FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 30. APRÍL 2010


Aflaverðmæti 8 milljarðar króna
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 8 milljörðum króna í janúar 2010 samanborið við 7,3 milljarða í janúar 2009. Aflaverðmæti hefur því aukist um tæpar 700 milljónir eða 9% á milli ára.

Aflaverðmæti botnfisks var 6,8 milljarðar og jókst um 16% frá janúar í fyrra þegar aflaverðmætið nam tæpum 5,9 milljörðum. Verðmæti þorskafla var um 4,1 milljarðar og jókst um 21% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam tæpum 1,3 milljarði og jókst um 16% en verðmæti karfaaflans nam tæpum 500 milljónum, sem er 15% samdráttur frá janúar 2009. Verðmæti ufsaaflans jókst um 29% milli ára í 372 milljónir.

Verðmæti uppsjávarafla nam 657 milljónum króna í janúar 2010, sem er um 32% samdráttur frá fyrra ári. Aflaverðmæti flatfisksafla nam 528 milljónum, sem er 5% aukning miðað við janúar 2009.
 
Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 3,7 milljörðum króna í janúar og jókst um 5% miðað við janúar 2009. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 39% milli ára og var um 2 milljarðar í janúar 2010. Aflaverðmæti sjófrystingar nam 1,6 milljarði í janúar og jókst um 46% milli ára en verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 718 milljónum, sem er 30% samdráttur frá janúar 2009.

Af tæknilegum ástæðum hefur birtingaráætlun á mánaðarlegum fréttum yfir verðmæti sjávarafurða verið endurskoðuð fyrir árið 2010. Mun því næsta frétt yfir verðmæti sjávarafurða janúar-febrúar 2010 verða birt 28. maí 2010 í stað áður áætlaðrar dagsetningar, sem var 19. maí 2010.  

Verðmæti afla janúar 2010  
Milljónir króna Janúar Breyting frá
    2009 2010 fyrra ári í %
Verðmæti alls 7.330 8.016 9,4
Botnfiskur 5.851 6.795 16,1
Þorskur 3.399 4.097 20,5
Ýsa 1.082 1.251 15,6
Ufsi 289 372 28,5
Karfi 578 494 -14,6
Úthafskarfi 0 0 -
Annar botnfiskur 502 581 15,8
Flatfisksafli 504 528 4,8
Uppsjávarafli 966 657 -31,9
Síld 521 192 -63,2
Loðna 0 0 -
Kolmunni 349 220 -36,9
Annar uppsjávarafli 95 245 157,3
Skel- og krabbadýraafli 7 34 403,3
Rækja 6 34 463,3
Annar skel- og krabbad.afli 1 0 -62,9
Annar afli 3 2 -27,5

Verðmæti afla eftir tegund löndunar janúar 2010  
Milljónir króna Janúar Breyting frá
    2009 2010 fyrra ári í %
Verðmæti alls 7.330 8.016 9,4
Til vinnslu innanlands 3.466 3.645 5,2
Í gáma til útflutnings 1.029 718 -30,2
Landað erlendis í bræðslu 70 0 -
Sjófryst 1.094 1.597 46,1
Á markað til vinnslu innanlands 1.448 2.008 38,7
Á markað, í gáma til útflutnings 130 0 -
Sjófryst til endurvinnslu innanl. 1 0 -
Selt úr skipi erlendis 41 0 -
Fiskeldi 2 0 -
  Aðrar löndunartegundir 48 47 -1,0

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.