FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 27. JÚLÍ 2018

Verðmæti sjávarafla íslenskra skipa í apríl nam tæpum 11,4 milljörðum króna sem er tæplega 33% aukning borið saman við apríl í fyrra. Verðmæti botnfiskaflans var um 8,3 milljarðar króna og þar af var verðmæti þorskaflans rúmir 4,5 milljarðar. Aflaverðmæti uppsjávartegunda var tæpir 2 milljarðar króna og var að langmestu leyti fyrir kolmunna. Verðmæti flatfiskafla nam tæplega 773 milljónum króna og verðmæti skelfiskafla var 348 milljónir króna.

Á 12 mánaða tímabili, frá maí 2017 til apríl 2018, nam aflaverðmæti úr sjó tæplega 122 milljörðum króna sem er 5 prósentustigum hærra en á sama tímabili árið áður.

Upplýsingar um aflaverðmæti sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum um verðmæti fyrstu sölu landaðs afla sem Fiskistofa safnar saman.

Verðmæti afla 2017–2018
Milljónir króna Apríl Maí-apríl
  2017 2018 % 2016–2017 2017–2018 %
             
Verðmæti alls 8.562,8 11.368,7 32,8 115.844,7 121.650,7 5,0
             
Botnfiskur 6.590,6 8.293,3 25,8 77.865,8 86.277,0 10,8
Þorskur 3.321,9 4.538,4 36,6 49.219,4 55.075,5 11,9
Ýsa 831,3 860,9 3,6 8.062,9 8.791,2 9,0
Ufsi 800,5 846,9 5,8 7.014,6 7.357,3 4,9
Karfi 987,3 1.160,4 17,5 8.711,7 10.240,2 17,5
Úthafskarfi 0,0 0,0 - 597,4 333,3 -44,2
Annar botnfiskur 649,5 886,7 36,5 4.259,9 4.479,5 5,2
Flatfiskafli 452,2 772,8 70,9 7.585,7 8.704,2 14,7
Uppsjávarafli 1.196,0 1.954,6 63,4 27.538,0 24.264,6 -11,9
Síld 0,0 0,0 - 6.193,1 4.504,4 -27,3
Loðna 0,0 0,0 - 6.709,4 5.890,8 -12,2
Kolmunni 1.187,2 1.953,9 64,6 3.763,8 5.351,9 42,2
Makríll 8,8 0,8 -91,2 10.871,6 8.517,4 -21,7
Annar uppsjávarafli 0,0 0,0 - 0,1 0,0 -43,7
Skel- og krabbadýraafli 324,1 348,0 7,4 2.855,2 2.405,0 -15,8
Humar 132,4 138,5 4,6 876,9 834,8 -4,8
Rækja 178,7 154,2 -13,7 1.662,9 1.150,4 -30,8
Annar skel- og krabbadýrafli 13,0 55,3 324,9 315,5 419,7 33,0
Annar afli 0,0 0,0 0,0 0,0
Verðmæti afla eftir tegund löndunar 2017–2018
Milljónir króna Apríl Maí-apríl
  2017 2018 % 2016–2017 2017–2018 %
             
Verðmæti alls 8.562,8 11.368,7 32,8 115.844,7 121.650,7 5,0
             
Til vinnslu innanlands 4.723,0 6.759,8 43,1 60.730,7 67.535,1 11,2
Á markað til vinnslu innanlands 1.162,3 1.715,3 47,6 17.853,8 17.209,1 -3,6
Sjófryst til endurvinnslu innanlands 67,4 0,0 - 67,4 1,0 -98,6
Í gáma til útflutnings 458,3 527,3 15,1 4.550,5 4.704,6 3,4
Sjófryst 2.132,0 2.340,2 9,8 31.787,6 31.979,1 0,6
Aðrar löndunartegundir 19,9 26,1 31,0 854,8 221,8 -74,0
Verðmæti afla eftir staðsetningu verkunarstaðar 2017–2018
Milljónir króna Apríl Maí-apríl
  2017 2018 % 2016–2017 2017–2018 %
             
Verðmæti alls 8.562,8 11.368,7 32,8 115.844,7 121.650,7 5,0
             
Höfuðborgarsvæði 2.028,0 2.608,8 28,6 27.597,4 30.500,1 10,5
Vesturland 539,0 766,1 42,1 5.891,0 6.822,0 15,8
Vestfirðir 351,1 551,8 57,2 6.406,9 6.567,1 2,5
Norðurland vestra 431,9 493,7 14,3 6.878,6 6.104,1 -11,3
Norðurland eystra 885,0 1.151,6 30,1 15.259,0 16.017,3 5,0
Austurland 1.354,0 2.226,4 64,4 16.889,2 19.517,9 15,6
Suðurland 812,1 1.118,3 37,7 12.192,3 10.668,1 -12,5
Suðurnes 1.668,0 1.915,4 14,8 19.490,3 20.503,7 5,2
Útlönd 493,8 536,6 8,7 5.239,9 4.950,4 -5,5


Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fiskitolur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.