FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 12. JÚNÍ 2015

Árið 2014 nam verðmæti útflutningsframleiðslu sjávarafurða rúmum 248 milljörðum króna og dróst saman um 15% frá fyrra ári. Er þar um að ræða samtölu útflutnings og birgðabreytinga sjávarafurða. Framleiðslan mæld á föstu verði dróst saman um 7,1%. Fluttar voru út sjávarafurðir að verðmæti 272 milljarða króna sem er um 10,5% samdráttur milli ára og í magni um 16,7%. Árið 2014 voru flutt út 654 þúsund tonn samanborið við 786 þúsund tonn árið áður. Frystar afurðir skiluðu 53% af heildarútflutningsverðmæti. Af einstökum afurðum var verðmæti ísaðs þorsks mest, um 30,1 milljarður króna. Af heildarútflutningi sjávarafurða fór rúmlega 79% til Evrópu, 7% til Asíu og 6,8% til Ameríku.

 

Útflutningur og útflutningsframleiðsla sjávarafurða 2014 - Hagtíðindi

Talnaefni

 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.