FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 20. JÚNÍ 2013

Út er komið ritið Útflutningur og útflutningsframleiðsla sjávarafurða 2012. Í ritinu kemur m.a. fram að á árinu 2012 nam verðmæti útflutningsframleiðslu sjávarafurða tæpum 277 milljörðum króna og jókst um 7,9% frá fyrra ári. Er þar um að ræða samtölu útflutnings og birgðabreytinga sjávarafurða. Framleiðslan mæld á föstu verði jókst um 5,4%. Fluttar voru út sjávarafurðir að verðmæti 269 milljarðar króna og jókst verðmæti þeirra milli ára um 6,8% og í magni um 11,3%. Árið 2012 voru flutt út 749 þúsund tonn samanborið við 672 þúsund tonn árið áður. Frystar afurðir skiluðu 53% af heildarútflutningsverðmæti. Af einstökum afurðum vóg verðmæti heilfrysts makríls mest, tæplega 19 milljarðar króna. Af heildarútflutningi sjávarafurða fór 78,7% til Evrópu, 8,8 % til Asíu og 5,5% til Norður-Ameríku.

Útflutningur og útflutningsframleiðsla sjávarafurða 2012 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.